Manchester City
Manchester City er knattspyrnulið sem spilar í ensku úrvalsdeildinni og ríkjandi Englandsmeistari. Liðið var stofnað árið 1880 og hefur unnið efstu deild í Englandi 8 sinnum, þar af ensku úrvalsdeildina 6 sinnum. Leikvangurinn City of Manchester Stadium (Etihad Stadium) var opnaður árið 2003. Árið 2008 var liðið keypt af Abu Dhabi United Group og hefur liðið keypt dýra leikmenn síðan þá og uppskorið eftir því (titlar 2012, 2014 og 2018). Liðið var 5. tekjuhæsta félagsliðið árið 2017.
Manchester City. | |||
Fullt nafn | Manchester City. | ||
Gælunafn/nöfn | Citizens, Sky Blues, City | ||
---|---|---|---|
Stytt nafn | Man City, MCFC | ||
Stofnað | 1880, sem West Gorton (St. Marks) | ||
Leikvöllur | Etihad Stadium | ||
Stærð | 55,097 | ||
Knattspyrnustjóri | ![]() | ||
Deild | Enska úrvalsdeildin | ||
2021-2022 | 1. sæti | ||
|
Árið 2017 setti liðið nýtt met á Englandi þegar það vann 18 leiki í röð. Sama ár spilaði lið undirbúningleik á Laugardalsvelli við West Ham í ágúst. Tímabilið 2017-2018 setti City nýtt stigamet í úrvalsdeildinni þegar það náði 100 stigum.
Eigendur liðsins hafa verið sakaðir um ólöglega fjármálagjörninga. [1] Árið 2023 kærði enska úrvalsdeildin liðið fyrir að brjóta fjárhagslegar reglur. [2]
Leikmenn 2022Breyta
MarkmennBreyta
VarnarmennBreyta
- Ruben Dias
- Kyle Walker
- John Stones
- Aymeric Laporte
- Nathan Aké
- Eric Garcia
- Phillippe Sandler
- Rico Lewis
- Manuel Akanji
MiðjumennBreyta
- Kevin De Bruyne
- İlkay Gündoğan
- Bernardo Silva
- Riyad Mahrez
- Rodri
- Phil Foden
- Jack Grealish
- Kalvin Phillips
SóknarmennBreyta
TitlarBreyta
- Fyrsta deild/Úrvalsdeild (8): 1936–37, 1967–68, 2011–12, 2013–14, 2017–18, 2018–19, 2020-2021, 2021-2022
- Önnur/Fyrsta deild (7): 1898–99, 1902–03, 1909–10, 1927–28, 1946–47, 1965–66, 2001–02
- FA-Bikarinn (5): 1903–04, 1933–34, 1955–56, 1968–69, 2010–11
- Football League Cup (5): 1969–70, 1975–76, 2013–14, 2015–16, 2017–18, 2018-2019, 2019-2020, 2020-2021
- FA-Samfélagsskjöldurinn (4): 1937, 1968, 1972, 2012, 2018, 2019
- UEFA Cup Winners' Cup (1): 1969–70
TilvísanirBreyta
- ↑ Fordæðuskapur og fláræði Manchester City Rúv, skoðað 14. nóv, 2018.
- ↑ News - Manchester City charged with breaking financial rules by Premier League BBC, sótt 6/2 2023