Magnús Stefánsson

Magnús Stefánsson (f. í Reykjavík 1. október 1960) er fyrrverandi félagsmálaráðherra og þingmaður fyrir Framsóknarflokkinn í Vesturlandskjördæmi 1995-1999 og 2001-2003 og Norðvesturkjördæmi 2003-2009.

Magnús Stefánsson (MS)
Formaður umhverfisnefndar
Í embætti
2001–2003
Formaður fjárlaganefndar
Í embætti
2003–2006
Formaður Íslandsdeildar ÖSE-þingsins
Í embætti
2001–2003
Félagsmálaráðherra
Í embætti
2006–2007
5. varaforseti Alþingis
Í embætti
2007–2009
Alþingismaður
frá til  kjördæmi    þingflokkur
1995 1999  Vesturlandskjördæmi  Framsóknarfl.
2001 2003  Vesturlandskjördæmi  Framsóknarfl.
2003 2007  Norðvesturkjördæmi  Framsóknarfl.
2007 2009  Norðvesturkjördæmi  Framsóknarfl.
Persónulegar upplýsingar
Fæddur1. október 1960 (1960-10-01) (64 ára)
Reykjavík
Vefsíðahttp://www.magnuss.is/
Æviágrip á vef Alþingis

Magnús lauk samvinnuskólaprófi, stúdentsprófi og prófi í rekstrarfræði frá Samvinnuskólanum (í dag Háskólinn á Bifröst) samhliða vinnu hjá SÍS, Grunnaskóla Ólafsvíkur, vinnu á sjó og störfum sem bæjarritari Ólafsvíkur. Á árunum 1990-95 var hann sveitarstjóri í Grundarfirði.

Magnús var fyrst kosinn á þing í gamla vesturlandskjördæminu en síðan 1999, þegar því var breytt, norðvesturkjördæmi. Hann var skipaður félagsmálaráðherra 15. júní 2006.

Þann 8. mars 2007 leið yfir Magnús er hann flutti þingsályktunartillögu um jafnrétti við ræðupúltið í Alþingishúsinu.[1]


Fyrirrennari:
Jón Kristjánsson
Félagsmálaráðherra
(15. júní 200624. maí 2007)
Eftirmaður:
Jóhanna Sigurðardóttir


Tilvísanir

breyta
  1. „Talið að sykurfall hafi orðið hjá Magnúsi“. Morgunblaðið. 8. mars 2007. Sótt 6. maí 2007.

Tenglar

breyta
   Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.