1205
ár
(Endurbeint frá MCCV)
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1205 (MCCV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
breyta- Deilur Guðmundar biskups Arasonar og Kolbeins Tumasonar hófust.
- Órækja Snorrason, íslenskur höfðingi, sonur Snorra Sturlusonar.
Fædd
Dáin
Erlendis
breyta- 14. apríl - Orrustan um Adríanópel milli Búlgara og hers Latverska keisaradæmisins í Konstantínópel. Baldvin keisari var tekinn til fanga og dó síðar í fangelsi.
- 20. ágúst - Hinrik af Flæmingjalandi var krýndur konungur Latverska keisaradæmisins eftir að fregnir bárust af láti Baldvins bróður hans.
- Filippus 2. Frakkakonungur lagði Anjou undir sig. Jóhann landlausi óttaðist innrás í England og krafðist þess að allir enskir karlar yfir tólf ára aldri gengju í varnarlið.
- Valdimar sigursæli Danakonungur gekk að eiga Margréti (Dagmar) af Bæheimi.
- Stríð í Svíþjóð milli Sörkvis yngri og sona Knúts Eiríkssonar. Í orrustu í nóvember féllu þrír sonanna en sá fjórði, Eiríkur Knútsson, komst undan til Noregs og stýrði þaðan uppreisn gegn Sörkvi.
Fædd
Dáin
- 1. apríl - Amalrekur 1., konungur Kýpur og Jerúsalem (f. 1145).
- 5. apríl - Ísabella, drottning Jerúsalem (f. 1172).
- 7. maí - Ladislás 3., konungur Ungverjalands (f. 1201).
- Desember - Alexíus 5., keisari Býsans.
- Baldvin 1., greifi af Flæmingjalandi og keisari Latverska keisaradæmisins (f. 1172).