Leroy Aziz Sané (fæddur 11. janúar 1996) er þýskur knattspyrnumaður sem spilar með Bayern München og þýska landsliðinu. Hann spilar sem vængmaður og er hraður og tæknilegur leikmaður.

Leroy Sané
Upplýsingar
Fullt nafn Leroy Aziz Sané
Fæðingardagur 11. janúar 1996 (1996-01-11) (28 ára)
Fæðingarstaður    Essen, Þýskaland
Hæð 1,84m
Leikstaða Vængmaður
Núverandi lið
Núverandi lið Bayern München
Númer 10
Yngriflokkaferill
2001-2005
2005-2008
2008-2011
2011-2014
SG Wattenscheid 09
Schalke 04
Bayer 04 Leverkusen
Schalke 04
Meistaraflokksferill1
Ár Lið Leikir (mörk)
2014-2016 Schalke 04 47 (11)
2016-2020 Manchester City 80 (25)
2020- Bayern München 77 (18)
Landsliðsferill
2014-2015
2015
2015-
Þýskaland U19
Þýskaland U21
Þýskaland
11 (8)
10 (5)
55 (11)

1 Leikir með meistaraflokkum og mörk
talið í aðaldeild liðsins.

Sané.

Leroy Sané er sonur Regina Weber, þýskrar fimleikakonu sem vann til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum 1984 og Souleymane Sané, senegalísks knattspyrnumanns. Souleymane ólst upp í Frakklandi og var í franska hernum. Leroy hefur því bæði þýskt og franskt ríkisfang.

Ferill

breyta

Ferill í Þýskalandi

breyta

Sané stundaði fótboltaæfingar ungur að árum eða allt frá árinu 2001. Árið 2005 æfði hann með Schalke 04 og síðar Bayer Leverkusen. Sané spilaði fyrsta Bundeliga-leikinn sinn með Schalke 04 árið 2014.

Manchester City

breyta

Árið 2016 gerði Sané samning við Manchester City. Í október 2017 var hann valinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni og tímabilið 2017-2018 var hann valinn besti ungi leikmaður tímabilsins (9 mörk og 15 stoðsendingar í 28 leikjum).

Sané vann 2 úrvalsdeildartitla með City. Hann var meiddur mestallt tímabilið 2019-2020.

Sumarið 2020 náðust samningar milli Man City og Bayern München um að Sané færi til þeirra síðarnefndu.

Heimild

breyta
   Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.