Knattspyrnukeppni heimssýningarinnar í París
Knattspyrnukeppni heimssýningarinnar í París eða Tournoi international de l'Exposition Universelle de Paris var alþjóðlegt mót sem fram fór í Frakklandi dagana 30. maí til 6. júní árið 1937 og haldið í tengslum við heimssýninguna í París það ár. Átta félagsliðum frá jafnmörgum löndum var boðið til keppni og var leitast við að fá sem allra sterkasta fulltrúa hverrar þjóðar. Keppnin var einn af undanförum Evrópukeppni meistararaliða á sjötta áratugnum.
Keppnislið
breytaFélag | Land | Árangur í heimalandi |
---|---|---|
Austria Vín | Austurríki | 2. sæti 1936-37 |
Bologna | Ítalíu | meistarar 1936-37 |
Chelsea | Englandi | 13. sæti 1936-37 |
VfB Leipzig | Þýskalandi | bikarmeistarar 1936 |
Marseille | Frakklandi | meistarar 1936-37 |
Phöbus FC | Ungverjalandi | 4. sæti 1936-37 |
Slavia Prag | Tékkóslóvakíu | meistarar 1936-37 |
Sochaux | Frakklandi | 2. sæti 1936-37 |
Keppnin
breytaFyrsta umferð
breyta30. maí | |||
Austria Vín | 2-0 | VfB Leipzig | Le Havre |
30. maí | |||
Slavia Prag | 2-1 | Phöbus FC | Strasbourg |
30. maí | |||
Chelsea | 1-1 | Marseille | Antibes |
Chelsea sigraði á hlutkesti |
30. maí | |||
Bologna | 4-1 | Sochaux | París |
Undanúrslit
breyta3. júní | |||
Chelsea | 2-0 | Austria Vín | París |
3. júní | |||
Bologna | 2-0 | Slavia Prag | Lille |
Bronsleikur
breyta6. júní | |||
Slavia Prag | 2-0 | Austria Vín | París |
Úrslitaleikur
breytaBologna mætti fullt sjálfstrausts í úrslitaleikinn með lið skipað nokkrum leikmönnum frá Suður-Ameríku. Eftir rétt um hálftíma leik var staðan orðin 3:0 og úrslitin aldrei í hættu eftir það. Þótt Chelsea hefði ekki hafnað nema rétt fyrir neðan miðja deild í heimalandinu og hin liðin væru flest meistaralið í sínum löndum komu úrslitin talsvert á óvart og voru talin til marks um að ítölsk knattspyrna væri ekki lengur eftirbátur enska boltans.
3. júní | |||
Bologna | 4-1 | Chelsea | París Dómari: Lucien Leclercq, Frakklandi |
Carlo Reguzzoni 15, 31, 65, Giovanni Busoni 20 | Sam Weaver 72 |
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Tournoi international de l'Exposition Universelle de Paris“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 1. apríl 2024.