Karl Nehammer
Karl Nehammer (f. 18. október 1972) er austurrískur stjórnmálamaður sem hefur verið kanslari Austurríkis frá 6. desember 2021. Hann er meðlimur í Austurríska þjóðarflokknum og var innanríkisráðherra landsins frá 2020 til 2021. Hann hefur setið á neðri deild austurríska þingsins frá árinu 2017.[1]
Karl Nehammer | |
---|---|
Kanslari Austurríkis | |
Núverandi | |
Tók við embætti 6. desember 2021 | |
Forseti | Alexander Van der Bellen |
Forveri | Alexander Schallenberg |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 18. október 1972 Vín, Austurríki |
Stjórnmálaflokkur | Austurríski þjóðarflokkurinn |
Maki | Katharina Nehammer (f. Nidetzky) |
Börn | 2 |
Háskóli | Dónárháskóli í Krems |
Nehammer á að baki langan feril innan austurríska hersins. Sem innanríkisráðherra í stjórn Sebastians Kurz var hann þekktur fyrir harða afstöðu sína í innflytjendamálum og fyrir andstöðu gegn róttækri íslamstrú.[2]
Nehammer var kjörinn formaður Þjóðarflokksins þann 3. desember 2021 eftir að Kurz, sem hafði sagt af sér kanslaraembættinu tveimur mánuðum fyrr vegna spillingarrannsóknar, tilkynnti að hann hygðist hætta alfarið í stjórnmálum.[3] Í kjölfarið lýsti Alexander Schallenberg, sem hafði tekið við kanslaraembættinu af Kurz, yfir að hann hygðist hætta sem kanslari og víkja fyrir nýjum leiðtoga flokksins.[4]
Nehammer fundaði með Volodímír Selenskíj Úkraínuforseta í Kænugarði og svo með Vladímír Pútín Rússlandsforseta í Moskvu í apríl 2022. Hann var fyrsti evrópski leiðtoginn sem hitti Pútín eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst.[5][6]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Karl Nehammer, MSc“. Þjóðarráð Austurríkis (þýska). Sótt 3. desember 2021.
- ↑ Atli Ísleifsson (3. desember 2021). „Fyrrverandi hermaður næsti kanslari Austurríkis“. Vísir. Sótt 8. desember 2021.
- ↑ Ásgeir Tómasson (3. desember 2021). „Kanslaraskipti fram undan í Austurríki“. RÚV. Sótt 8. desember 2021.
- ↑ Þórdís B. Sigurþórsdóttir (3. desember 2021). „Kanslari Austurríkis segir af sér eftir aðeins tvo mánuði í starfi“. Fréttin.is. Sótt 3. desember 2021.
- ↑ „Kanslari Austurríkis til fundar með Pútín“. mbl.is. 10. apríl 2022. Sótt 18. apríl 2022.
- ↑ Ólöf Ragnarsdóttir (11. apríl 2022). „Átti „beinskeyttan, opinn og óvæginn" fund með Pútín“. Fréttablaðið. Sótt 18. apríl 2022.
Fyrirrennari: Alexander Schallenberg |
|
Eftirmaður: Enn í embætti |