Jón Sigurðsson (f. 1941)

Íslenskur stjórnmálamaður (f. 1941)

Jón Sigurðsson (f. 17. apríl 1941) er íslenskur hagfræðingur og fyrrum alþingismaður og ráðherra. Að loknum stjórnmálaferli varð Jón seðlabankastjóri í Seðlabanka Íslands en síðar aðalbankastjóri Norræna fjárfestingabankans.

Jon Sigurdsson, verkstallande direktor Nordiska Investeringsbanken (NIB)(Bilden ar tagen vid Nordiska radets session i Oslo, 2003).jpg
Þessi grein fjallar um ráðherra Alþýðuflokksins. Fyrir ráðherra Framsóknarflokks má sjá Jón Sigurðsson (f. 1946). Fyrir aðra má sjá aðgreiningarsíðuna.

Jón lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1960, fil. kand. prófi í þjóðhagfræði og tölfræði frá Stokkhólmsháskóla árið 1964 og M.Sc. Econ. í þjóðhagfræði frá London School of Economics and Political Science árið 1967.

Áður en Jón settist á þing var hann m.a. forstjóri Þjóðhagsstofnunar frá 1974-1986. Hann var fyrst kjörinn á þing fyrir Alþýðuflokkinn í Reykjavíkurkjördæmi árið 1987 og varð dómsmálaráðherra og viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar sama ár. Í annarri og þriðju ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar og Viðeyjarstjórninni (til 1993) var hann iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

TenglarBreyta

   Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.