Inga Sæland
íslensk stjórnmálakona
Inga Sæland (f. 3. ágúst 1959) er íslenskur stjórnmálamaður sem er fyrsti og núverandi formaður Flokks fólksins.[1] Hún situr á Alþingi fyrir Reykjavíkurkjördæmi suður eftir að hafa náð kjöri í Alþingiskosningunum 2017. Inga hlaut BA-gráðu í lögfræði við Háskóla Íslands árið 2016 og nam þar áður stjórnmálafræði í skólanum frá 2003–2006.[2]
Inga Sæland (IngS) | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Formaður Flokks fólksins | |||||||
Núverandi | |||||||
Tók við embætti 2016 | |||||||
Alþingismaður | |||||||
| |||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||
Fædd | 3. ágúst 1959 Ólafsfjörður | ||||||
Stjórnmálaflokkur | Flokkur fólksins | ||||||
Maki | Óli Már Guðmundsson | ||||||
Börn | 4 | ||||||
Menntun | BA í lögfræði | ||||||
Háskóli | Háskóli Íslands | ||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Inga hafði áður orðið þjóðkunn sem keppandi í íslenskri útgáfu hæfileikaþáttanna X factor á árunum 2006-2007.[3] Sem stjórnmálamaður hefur Inga lýst sjálfri sér sem popúlista og líkt sjálfri sér við frönsku stjórnmálakonuna Marine Le Pen.[4] Sem þingmaður hefur Inga gjarnan verið málsvari öryrkja og hinna fátæku á Íslandi.
Inga á fjögur börn og fimm barnabörn.[5]
Tilvísanir
breyta- ↑ Um Flokk fólksins Geymt 7 nóvember 2017 í Wayback Machine, sótt 31. desember 2017.
- ↑ Inga Sæland, Æviágrip þingmanna frá 1845, Alþingi, sótt 31. desember 2017.
- ↑ „Inga Sæland kvaddi X Factor“. Vísir. 16. mars 2007. Sótt 28. nóvember 2018.
- ↑ „Inga Sæland: „Ég er sennilega svona Marine Le Pen týpa"“. Kjarninn. 2. ágúst 2017. Sótt 28. nóvember 2018.
- ↑ „Inga Sæland“. RÚV. 18. október 2016. Sótt 28. nóvember 2018.