Hlynir
(Endurbeint frá Hlynur)
Hlynir (fræðiheiti: Acer) er ættkvísl trjáa af sápuberjaætt. Þetta eru um 128 tegundir. Hlynir eru oftast einstofna tré með mjög breiða krónu. Þeir þurfa frjósaman jarðveg og skjól í æsku en verða vind- og saltþolin tré.
Hlynir | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Dreifing
|
Útbreiðsla
breytaÁ Íslandi
breytaNokkrar tegundir hafa verið reyndar hérlendis. Þar á meðal:[1]
- Garðahlynur (A. pseudoplatanus) verður yfir 15 m hár á Íslandi. Hann þrífst vel á sunnanverðu Íslandi og þroskar fræ.
- Broddhlynur (A. platanoides) Lifir en kelur yfirleitt mikið.
- Hagahlynur (A. campestre) Reynsla slök.
- Gljáhlynur (A. glabrum) Þokkalegur á Akureyri. Tilraunir annars staðar.
- Síberíuhlynur (A. ginnala) Vex vel en kelur nokkuð árlega.
- Askhlynur (A. negundo) Lítil reynsla.
- Japanshlynur: Lítil reynsla, smágert tré og blöð. Viðkvæmur.
Heimild
breyta- ↑ http://www.lystigardur.akureyri.is/?modID=1&id=45&lat=1&l=a Lystigarður Akureyrar