Helgi Skúlason
Helgi Skúlason (4. september 1933 – 25. september 1996) var íslenskur leikari og leikstjóri sem er þekktur fyrir kvikmyndaleik í myndum eins og Húsið (1983) og Hrafninn flýgur (1984); og fyrir leiklestur á þekktum barnaplötum eins og Karíus og Baktus og Æfintýri í Mararþaraborg. Helgi lék bæði hjá Þjóðleikhúsinu og Leikfélagi Reykjavíkur, og leikstýrði fyrir Útvarpsleikhúsið á sama tíma. Hann var fyrsti formaður Félags leikstjóra á Íslandi 1972.
Helgi var giftur Helgu Bachmann leikkonu. Meðal barna þeirra eru Skúli Helgason, stjórnmálamaður, og Helga Vala Helgadóttir, lögmaður.
Kvikmyndaferill
breyta- Agnes (1995)
- Hin helgu vé (1993)
- Svo á jörðu sem á himni (1992)
- Kristnihald undir jökli (1989)
- Í skugga hrafnsins (1988)
- Leiðsögumaðurinn (1987)
- Hrafninn flýgur (1984)
- Húsið (1983)
- Útlaginn (1981)
- Blóðrautt sólarlag (1977)