Helga Bachmann
Helga Bachmann (24. júlí 1931 – 7. janúar 2011) var íslensk leikkona á sviði og í kvikmyndum. Þær kvikmyndir sem hún er þekktust fyrir eru meðal annars Í skugga hrafnsins og Atómstöðin. Helga var sæmd riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu árið 1986. Hún var gift Helga Skúlasyni leikara og áttu þau þrjú börn en fyrir átti Helga eina dóttur.