Handknattleiksárið 1968-69
Handknattleiksárið 1968-69 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1968 og lauk sumarið 1969. FH-ingar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki og Valskonur í kvennaflokki. Karlalandsliðið tók ekki þátt í stórmóti á tímabilinu.
Karlaflokkur
breyta1. deild
breytaFH-ingar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki karla. Keppt var í sex liða deild með tvöfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
FH | 19 |
Fram | 13 |
Haukar | 11 |
Valur | 7 |
KR | 6 |
ÍR | 4 |
ÍR féll í 2. deild
2. deild
breytaVíkingar sigruðu í 2. deild á fullu húsi stiga og tryggðu sér sæti í 1. deild. Keppt var í fimm liða deild með tvöfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Víkingur | 14 |
Þróttur | 8 |
Ármann | 8 |
KA | 7 |
ÍBK | 1 |
Evrópukeppni
breytaKeppni í Evrópukeppni félagsliða féll niður þetta leikárið vegna innrásar Sovétmanna inn í Tékkóslóvakíu.
Landslið
breytaKarlalandsliðið lék nokkra vináttulandsleiki á tímabilinu. Þar á meðal var haldið í keppnisferð til Svíþjóðar og Danmerkur. Leikurinn gegn Svíum tapaðist naumlega en viðureignin við Dani tapaðist stórt.
Kvennaflokkur
breyta1. deild
breytaValsarar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna á fullu húsi stiga. Keppt var í sjö liða deild með einfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
Valur | 12 |
Fram | 9 |
Víkingur | 7 |
Breiðablik | 5 |
KR | 4 |
Ármann | 4 |
ÍBK | 1 |