Handknattleiksárið 1959-60
Handknattleiksárið 1959-60 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1959 og lauk sumarið 1960. FH-ingar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki og Ármannsstúlkur í kvennaflokki. Íslenska kvennalandsliðið tók þátt í Norðurlandamóti í Svíþjóð.
Karlaflokkur
breyta1. deild
breytaFH-ingar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki karla á fullu húsi stiga. Keppt var í sex liða deild með einfaldri umferð.
Félag | Stig |
---|---|
FH | 10 |
KR | 8 |
ÍR | 6 |
Valur | 4 |
Afturelding | 2 |
Ármann | 0 |
Ármann féll í 2. deild.
2. deild
breytaFramarar sigruðu í 2. deild á fullu húsi stiga og tryggðu sér sæti í 1. deild. Leikin var einföld umferð í fjögura liða deild, auk gestaliðs
Félag | Stig |
---|---|
Fram | 6 |
Víkingur | 4 |
Þróttur | 2 |
ÍA | 0 |
Reykvíska íþróttafélagið Skandinavisk boldklub tók þátt í mótinu sem gestalið og voru leikir þess ekki taldir með í lokastöðu. Það tapaði leikjum sínum gegn Fram, Víkingi og Þrótti með miklum mun. Lið ÍA mætti ekki til leiks gegn Skandinavian boldklub.
Kvennaflokkur
breyta1. deild
breytaÁrmenningar urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna á fullu húsi stiga. Leikin var einföld umferð í sjö liða deild.
Félag | Stig |
---|---|
Ármann | 12 |
Valur | 10 |
KR | 8 |
Þróttur | 6 |
FH | 5 |
Fram | 2 |
Víkingur | 1 |
Landslið
breytaKvennalandsliðið tók þátt í Norðurlandamóti í Västerås og hafnaði í 2. sæti.
- Ísland – Danmörk 7:10
- Ísland – Noregur 8:8
- Ísland – Svíþjóð 7:6
Land | Stig |
---|---|
Danmörk | 5 |
Ísland | 3 |
Noregur | 3 |
Svíþjóð | 1 |
Engir karlalandsleikir fóru fram á tímabilinu.