Handknattleiksárið 1947-48
Handknattleiksárið 1947-48 var keppnistímabilið í íslenskum handknattleik sem hófst haustið 1947 og lauk sumarið 1948. Valsarar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki og Ármann í kvennaflokki. Engir landsleikir fóru fram á tímabilinu.
Karlaflokkur
breyta1. deild
breytaValsarar urðu Íslandsmeistarar á fullu húsi stiga. Níu lið tóku þátt í Íslandsmóti karla og léku þau einfalda umferð í einni deild.
Sú breyting var gerð á leikreglunum í karlaflokki að leiktíminn var 2 sinnum 25 mínútur, í samræmi við alþjóðareglur, en hafði fram til þessa verið 2 sinum 15 mínútur. Um leið var innleidd sú regla að skipta mætti mönnum inn og út af vellinum meðan á leik stæði.
Félag | Stig |
---|---|
Valur | 16 |
Ármann | 14 |
ÍR | 10 |
Víkingur | 8 |
KR | 8 |
ÍA | 6 |
FH | 6 |
Fram | 0 |
Haukar | 0 |
Kvennaflokkur
breyta1. deild
breytaÁrmannsstúlkur urðu Íslandsmeistarar í meistaraflokki kvenna eftir úrslitaleik gegn KR. Sjö lið tóku þátt í Íslandsmóti kvenna og léku þau einfalda umferð í tveimur þriggja og fjögurra liða riðlum.
A riðill
Félag | Stig |
---|---|
Ármann | 6 |
Fram | 4 |
FH | 2 |
Týr Ve. | 0 |
B riðill
Félag | Stig |
---|---|
KR | 4 |
ÍR | 2 |
Haukar | 0 |
Úrslitaleikur
- Ármann - KR 2:2 (eftir tvíframlengdan leik)
2. úrslitaleikur
- Ármann KR 4:1
Íslandsmótið utanhúss
breytaÍslandsmótið í handknattleik utanhúss var haldið sumarið 1948. Þrjú félög tóku þátt í karlaflokki og fóru Ármenningar með sigur af hólmi. Átta lið tóku þátt í kvennaflokki og urðu Framarar Íslandsmeistarar eftir sigur á Þór Ve. í framlengdum úrslitaleik, 2:1.
Landslið
breytaEngir formlegir landsleikir fóru fram á tímabilinu. Danskur handknattleiksflokkur skipaður leikmönnum úr Kaupmannahafnarliðunum HG og Ajax heimsótti Ísland vorið 1948 og lék m.a. tvo leiki við úrvalslið íslenskra handknattleiksmanna og vann þá báða.