Georg 6.
Georg 6. (Albert Frederick Arthur George Windsor) (14. desember 1895 - 6. febrúar 1952) varð konungur breska heimsveldisins og keisari Indlands þann 11. desember 1936 og ríkti til dauðadags. Hann tók við völdum þegar eldri bróðir hans, Játvarður 8., afsalaði sér konungdómi til þess að geta gifst unnustu sinni, en hún var fráskilin. Georg var síðasti keisari Indlands (til 1947) og síðasti konungur Írlands til 1948, þegar Írland yfirgaf heimsveldið. Hann var þriðji breski konungurinn sem notaði nafnið Windsor, en faðir hans, Georg 5., tók það upp.
| ||||
Georg VI
| ||||
Ríkisár | 10. desember 1936 - 6. febrúar 1952 | |||
Skírnarnafn | Albert Frederick Arthur George | |||
Fæddur | 14. desember 1895 | |||
York Cottage í Norfolk | ||||
Dáinn | 6. febrúar 1952 (57 ára) | |||
Sandringhamhöll, Norfolk, Englandi | ||||
Gröf | Í kapellu heilags Georgs, Windsorkastala | |||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Georg 5. | |||
Móðir | María af Teck | |||
Drottning | Lafði Elísabet Bowes-Lyon | |||
Börn | Elísabet 2. drottning (f. 1926) Margrét Rós (f. 1930), greifaynja af Snowdon |
Georg 6. fæddist í York Cottage í Norfolk. Foreldrar hans voru Georg prins, hertogi af York (síðar Georg 5. konungur) og kona hans María hertogaynja af York (síðar María Bretadrottning). Föðurforeldrar hans voru Játvarður prins af Wales, síðar konungur, og kona hans Alexandra prinsessa af Danmörku og síðar drottning. Móðurforeldrar Georgs voru Frans prins og hertogi af Teck og María Adelaide prinsessa af Cambridge.
Hann giftist 26. apríl 1923 lafði Elísabet Bowes-Lyon. Hún taldist til alþýðu samkvæmt reglum hirðarinnar, þó að hún væri afkomandi bæði Róberts 1. Skotakonungs og Hinriks 7. Englandskonungs, en við giftingu þeirra hlaut hún titilinn „hennar konunglega hátign, hertogaynjan af York“. Þau eignuðust tvær dætur: Elísabetu prinsessu (f. 21. apríl 1926), síðar drottningu, og Margréti prinsessu (f. 21. ágúst 1930, d. 9. febrúar 2002).
Georg 6. fékk krabbamein í lungu og var annað lunga hans fjarlægt í september 1951. Jólaræða hans það ár var hljóðrituð í mörgum hlutum sem voru svo sameinaðir í eina heild og útvarpað. Hann andaðist sex vikum síðar.
Fyrirrennari: Játvarður 8. |
|
Eftirmaður: Elísabet 2. |