Fennísk tungumál
(Endurbeint frá Fennísk mál)
Fennísk tungumál eru grein úralskra mála sem töluð eru á svæðinu í kringum Eystrasalt, helst í Finnlandi og Eistlandi. Málhafar fennískra mála eru um það bil 7 milljónir.
Fennísk tungumál | ||
---|---|---|
Málsvæði | Fennóskandía, í kringum Eystrasalt, Norðvestur-Rússland | |
Ætt | Úralskt Finnsk-úgrískt Fennískt | |
Undirflokkar | Finnska Eistneska Ingríska Votíska Kirjálska Lúdíska Vepsíska |
Fennísk mál eru átta samtals. Stærstu tvö málin eru finnska og eistneska en þau eru opinber mál í þeim löndum þar sem þau eru töluð. Meðal hinna fennísku málanna eru ingríska og votíska, sem töluð eru í Ingríu við Kirjálabotn, líflenska sem töluð var einu sinni um sundið við Riga. Í norðaustri eru kirjálska, lúdíska og vepsíska talaðar.
Smærri málin í fennísku greininni eru í útrýmingarhættu. Síðasti málhafi líflensku lést árið 2013 en aðeins tylft málhafa votísku er enn á lífi.