Chandrika Kumaratunga
Chandrika Kumaratunga (f. 29. júní 1945) er srílanskur stjórnmálamaður. Hún var forsætisráðherra Srí Lanka árið 1994 og síðan forseti Srí Lanka frá 1994 til 2005. Kumaratunga er dóttir tveggja fyrrum forsætisráðherra Srí Lanka; Solomons og Sirimavo Bandaranaike. Hún er eina konan sem hefur verið forseti landsins og var leiðtogi srílanska Frelsisflokksins frá 1994 til 2006.
Chandrika Kumaratunga | |
---|---|
චන්ද්රිකා කුමාරතුංග | |
Forseti Srí Lanka | |
Í embætti 12. nóvember 1994 – 19. nóvember 2005 | |
Forsætisráðherra | Sirimavo Bandaranaike Ratnasiri Wickremanayake Ranil Wickremesinghe Mahinda Rajapaksa |
Forveri | Dingiri Banda Wijetunga |
Eftirmaður | Mahinda Rajapaksa |
Forsætisráðherra Srí Lanka | |
Í embætti 19. ágúst 1994 – 12. nóvember 1994 | |
Forseti | Dingiri Banda Wijetunga |
Forveri | Ranil Wickremesinghe |
Eftirmaður | Sirimavo Bandaranaike |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 29. júní 1945 Kólombó, Ceylon |
Þjóðerni | Srílönsk |
Stjórnmálaflokkur | Frelsisflokkurinn |
Maki | Vijaya Kumaranatunga (g. 1978; d. 1988) |
Trúarbrögð | Búddismi |
Börn | 2 |
Foreldrar | Solomon Bandaranaike og Sirimavo Bandaranaike |
Háskóli | Institut d'études politiques de Paris École pratique des hautes études |
Undirskrift |
Æviágrip
breytaChandrika Kumaratunga nam við klausturskóla Heilagrar Birgittu í Kólombó og síðan við Akvínasarháskólann í borginni. Hún gekk síðan í Sciences Po í París og í Aix-en-Provence. Hún hóf síðan doktorsnám við skólann École pratique des hautes études í París á árunum 1968 til 1970.[1] Þegar Kumaratunga sneri aftur til Srí Lanka árið 1972 hóf hún ekki strax bein afskipti af stjórnmálum en tók þó við ýmsum stöðum hjá ríkisstjórninni. Hún var framkvæmdastjóri nefndar sem fjallaði um landeignarumbætur á árunum 1972 til 1976 og varð síðan forseti Janawasa-nefndarinnar, sem sá um skipulagningu samyrkjubúa, frá 1976 til 1977. Frá 1976 til 1979 var hún jafnframt meðlimur í sérfræðingaráði Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna
Á námsárum sínum í Frakklandi fékk Kumaratunga reynslu af pólitískri blaðamennsku sem starfsmaður hjá blaðinu Le Monde. Eftir heimkomuna til Srí Lanka varð hún ritstjóri dagblaðsins Dinakara Sinhala frá 1977 til 1985.[2]
Einkahagir
breytaChandrika giftist kvikmyndastjörnunni og stjórnmálamanninum Vijaya Kumaratunga árið 1978 en hann var myrtur tíu árum síðar þann 16. febrúar árið 1988, beint fyrir framan Chandriku og börn þeirra, sem þá voru fimm og sjö ára. Morðinginn var úr marxíska öfgahópnum Janatha Vimukthi Peramuna.
Dóttir þeirra, Yasodhara Kumaratunga (f. 1980), nam við Corpus Christi-skólann við Cambridge, við Læknisfræðiskóla Heilags Georgs og við Lundúnaháskóla, og gerðist læknir. Hún giftist Roger Walker, læknisfræðiráðgjafa í Dorset.[3]
Sonur þeirra, Vimukthi Kumaratunga (f. 1982), nam við Bristol-háskóla og gerðist dýralæknir.
Stjórnmálaferill
breytaValdataka
breytaEftir morðið á eiginmanni sínum flúði Chandrika Kumaratunga í tvö ár til London. Hún hóf þátttöku í stjórnmálum eftir heimkomuna til Srí Lanka og var kjörin forsætisráðherra Vesturhéraðs Srí Lanka.[4]
Eftir þingkosningar í ágúst árið 1994 var Kumaratunga útnefnd forsætiráðherra Srí Lanka. Hún var kjörin forseti landsins síðar sama ár með 62,2 % atkvæða. Hún útnefndi móður sína, Sirimavo Bandaranaike, til að taka við af sér í embætti forsætisráðherra.
Hún var endurkjörin þann 21. desember árið 1999 til annars sex ára kjörtímabils með 51,12 % atkvæða gegn Ranil Wickremesinga úr Sameinaða þjóðernisflokknum og tólf öðrum frambjóðendum. Árið 2005 tók forsætisráðherrann Mahinda Rajapakse við af henni á forsetastól eftir að hafa unnið 50,33 % atkvæða í forsetakosningum.
Að liðinni forsetatíð
breytaÍ forsetakosningum Srí Lanka árið 2010 lýsti Kumaratunga yfir stuðningi við frambjóðandann Sarath Fonseka, sem bað ósigur.[5]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Chandrika Kumaratunga - Wikiwand“. wikiwand.com. Sótt 22. maí 2020.
- ↑ Notice biographique
- ↑ „Photos d'un mois du mariage de Yasodhara Kumaratunga à Londres“. Afrit af upprunalegu geymt þann 1. september 2018. Sótt 16. janúar 2021.
- ↑ Bruno Philip (27. nóvember 1996). „« Chandrika » sous la menace des « Tigres »“ (franska). Le Monde. Sótt 22. maí 2020.
- ↑ Sri Lanka ex-president delivers poll blow to Rajapaksa, BBC, 24. janúar 2010
Fyrirrennari: Ranil Wickremesinghe |
|
Eftirmaður: Sirimavo Bandaranaike | |||
Fyrirrennari: Dingiri Banda Wijetunga |
|
Eftirmaður: Mahinda Rajapaksa |