Auður Eir Vilhjálmsdóttir
Auður Eir Vilhjálmsdóttir (f. 21. apríl 1937) er íslenskur prestur og fyrsta konan á Íslandi sem hlaut prestvígslu í Þjóðkirkjunni.
Auður Eir fæddist í Reykjavík og foreldrar hennar voru Inga Árnadóttir (1903-1995) húsmóðir og Vilhjálmur Þ. Gíslason (1897-1982) útvarpsstjóri. Maður Auðar er Þórður Örn Sigurðsson (f. 1935) og eiga þau fjórar dætur.[1]
Menntun og starfsferill
breytaHún lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands árið 1956 og embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 1962. Séra Auður Eir hlaut prestvígslu 29. september árið 1974, fyrst kvenna á Íslandi. Hún tók formlega við embætti 1. október og fór fyrst til þjónustu á Suðureyri við Súgandafjörð en frá 1978-1998 var hún sóknarprestur í Kirkjuhvolsprestakalli í Rangaárvallasýslu og starfaði svo síðar sem sérþjónustuprestur í Reykjavík.[2] Auður Eir var í framboði til embættis biskups Íslands árið 1997 en náði ekki kjöri.[3] Árið 1993 stofnaði Auður Eir Kvennakirkjuna sem var sjálfstæður hópur innan Þjóðkirkjunnar.
Auður Eir starfaði sem lögreglukona með námi og var starfsmaður á skólaheimilinu á Bjargi á Seltjarnarnesi. Hlutverk hennar á Bjargi varð síðar afar umdeilt en nokkrar stúlkur sem dvöldu á heimilinu sökuðu starfskonur um harðræði og ofbeldi.[4] Auður fékk viðurkenningu Jafnréttisráðs árið 2000 en síðar komst í hámæli meint harðræði hennar á skólaheimilinu. Aðspurð um hlutverk sitt í harðræðinu svaraði hún að svarið kæmi síðar. Fjölmiðlar hafa ekki fylgt því eftir og fengið svar við því hvenær væri von á svari.
Auður Eir hlaut riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu árið 2005.
Tilvísanir
breyta- ↑ Pétur Ástvaldsson, Samtíðarmenn A-Í bls. 39-40, (Reykjavík, 2003)
- ↑ „Hljótum að ryðja okkur til rúms“, Morgunblaðið 4. október 2004 (skoðað 6. febrúar 2021)
- ↑ „Vill að kirkjan dreifi valdi sínu“, Morgunblaðið, 17. apríl 1997 (skoðað 6. febrúar 2021)
- ↑ Dv.is, „Syndir kirkjunnar: Harðræði stúlknanna á Bjargi“ (skoðað 6. febrúar 2021)