Ættarnöfn á Íslandi

Á Íslandi eru ættarnöfn fátíð og í raun aðeins leyfð með undantekningum í mannanafnalögum. Erlendis eru hins vegar ættarnöfn nær undantekningalaus og notuð í almennum samskiptum, ólíkt Íslandi þar sem eiginnöfn eru notuð í almennum samskiptum.

Um 8.900 ættarnöfn eru í notkun á Íslandi, og um 27.000 manns bera ættarnafn[heimild vantar]. Algengustu ættarnöfnin á Íslandi eru: (tölurnar fyrir aftan nöfnin eru fjöldi þeirra sem báru nafnið árið 2002)

  1. Thorarensen (295)
  2. Blöndal (285)
  3. Hansen (276)
  4. Olsen (193)
  5. Möller (189)
  6. Thoroddsen (178)
  7. Andersen (176)
  8. Nielsen (172)
  9. Bergmann (156)
  10. Thorlacius (144)
  11. Briem (134)
  12. Waage (133)
  13. Jensen (127)
  14. Hjaltested (126)
  15. Petersen (114)
  16. Hjaltalín (111)
  17. Norðdahl (106)
  18. Fjeldsted (104)
  19. Scheving (102)
  20. Kvaran (97)
  21. Diego (90)
  22. Austar (5)

Íslensk ættarnöfn og uppruni þeirra

breyta
  • Beck - Saga Becksfjölskyldunnar á Sómastöðum á Reyðarfirði hefst þegar Hans og Steinunn fá ábúð á jörðinni 1870. Komið frá Danmörku
  • Blöndal - afbökun á staðarheitinu Blöndudalur í Húnaþingi.
  • Briem - afbökun á staðarheitinu Brjánslækur í Barðarstrandarsýslu.
  • Claessen - komið af hollenskum/dönskum uppruna, og má rekja ættina til Jean Valgard Claessen.
  • Diego - komið af frönsku landnemunum sem voru á meðal fyrstu Evrópumannanna sem settust að í Norður-Ameríku rétt um 1600
  • Egilson - Komið frá Þorsteini Egilson, syni Sveinbjarnar Egilssonar, rektors.
  • Kemp - flestir, ef ekki allir, sem nafn þetta bera hér á landi rekja það til Ludvig Conrad Frederick Kemp, frá Þýskalandi sem hingað fluttist um aldamótin 1800 og bjó á Húsavík og Eskifirði.
  • Ottesen - komið frá Lárusi Ottesen (Oddsyni) langafa Péturs Ottesen alþingismanns.
  • Rafnar - afbökun á bæjarheitinu Hrafnagili í Eyjafirði.
  • Scheving - íslensku Schevingarnir eru komnir frá Lauritz Hansson Scheving prófasti í Skevinge á Sjálandi sem uppi var um aldamótin 1600.
  • Stephensen - komið frá Ólafi Stefánssyni Stephensen stiftamtmanni sem skrifaðist á við danska konunginn undir nafninu Stephensen. Synir hans tóku svo líka upp nafnið, þar með talinn Magnús Stephensen
  • Thorlacius - Þórður sonur Þorláks biskups Skúlasonar á Hólum var skrifaður í skrá háskólans í Strassborg árið 1666 sem „Theodorus Thorlacisus Hola Islandus“. Er það upphaf nafnsins.
  • Vídalín - afbökun á staðarheitinu Víðidalur í Vestur-Húnavatnssýslu.
  • Wiium - af erlendum uppruna.
  • Zoëga - mun komið frá Ítalíu upphaflega. Ættfaðir hér á landi Jóhannes Zoega 1747 - 1821, hingað í fyrstu komin til að starfa við hina konunglegu verslun í Vestmannaeyjum, starfaði síðan við tugthúsið og sem bakari

Tenglar

breyta
  • „Hvenær voru lög um bann við ættarnöfnum samþykkt á Alþingi? Hvað yrði gert ef ég byggi til mitt eigið ættarnafn í dag?“. Vísindavefurinn.
  • „Eru Íslendingar einir um að kenna sig við feður sína í stað þess að nota ættarnöfn?“. Vísindavefurinn.
  • „Get ég tekið upp ættarnafn afa míns sem foreldrar mínir hafa ekki notað?“. Vísindavefurinn.