William Wordsworth
William Wordsworth (7. apríl, 1770 – 23. apríl, 1850) var enskt rómantískt skáld sem var, ásamt Samuel Taylor Coleridge, einn af upphafsmönnum stefnunnar. Þeir gáfu saman út ljóðasafnið Lyrical Ballads árið 1798 sem er af mörgum talið marka upphaf rómantíska tímabilsins.