Vikan mín með Marilyn
Vikan mín með Marilyn (enska: My Week with Marilyn) er bresk kvikmynd sem leikstýrð er af Simon Curtis og skrifuð af Adrian Hodges. Michelle Williams, Kenneth Branagh, Eddie Redmayne, Dougray Scott, Emma Watson og Judi Dench fara með aðalhlutverkin í myndinni sem er byggð á tveimur bókum eftir Colin Clark. Myndin fjallar um gerð kvikmyndarinnar The Prince and the Showgirl þar sem Marilyn Monroe og Laurence Olivier fóru með aðalhlutverkin og vikuna sem hún eyddi með Colin Clark í Bretlandi eftir að eiginmaður hennar Arthur Miller fór úr landi. Forsýning myndarinnar átti sér stað á kvikmyndahátíðinni í New York þann 9. október 2011 og var frumsýnd í Bandaríkjunum þann 4. nóvember 2011 og 30. desember á Íslandi.
My Week with Marilyn | |
---|---|
Leikstjóri | Simon Curtis |
Handritshöfundur | Adrian Hodges |
Framleiðandi | Harvey Weinstein David Parfitt |
Leikarar | Michelle Williams Emma Watson |
Frumsýning | 4. nóvember 2011 30. desember 2011 |
Lengd | 101 mín |
Tungumál | enska |
Aldurstakmark | Bönnuð innan 12 |
Söguþráður
breytaSumarið 1953 fylgist hinn 23. ára gamli Colin Clark með og skrásetur spennuna sem ríkir á milli Laurence Olivier og Marilyn Monroe á meðan að framleiðslu myndarinnar The Prince and the Showgirl stendur á. Sagan er byggð á tveimur dagbókum Colin Clarks sem þá var nýskriðinn úr Oxfordháskólanum og hafði tekist að fá vinnu sem aðstoðarmaður við gerð myndarinnar eftir mikla þrautsegju. Það upphófst mikið fjölmiðlafár í Bretlandi þegar Marilyn kom til London til að leika í myndinni í leikstjórn sjálfs Sir Laurence Olivier, konungs enskra leikara á þeim tíma. Með í för var eiginmaður Marilyn, rithöfundurinn frægi Arthur Miller, en þau voru þá nýgift og í raun var ferðin til Englands hluti af brúðkaupsferð þeirra.
Þegar Arthur ákveður að fara heim til Bandaríkjanna til að hitta börnin sín á undan Marilyn varð hún bæði óörugg og einmana og leitaði til Colins sem var að sjálfsögðu meira en fús til að gera hvað sem er fyrir þessa fegurstu og frægustu kvikmyndastjörnu heims. Á meðan varð Sir Laurence Olivier sífellt stirðari í skapi yfir óstundvísi og sérlundi Marilyn sem tafði tökur og ljóst að eitthvað varð að láta undan.
Leikendur
breyta- Michelle Williams sem Marilyn Monroe
- Kenneth Branagh sem Sir Laurence Olivier
- Eddie Redmayne sem Colin Clark
- Judi Dench sem Dame Sybil Thorndike
- Emma Watson sem Lucy
- Dougray Scott sem Arthur Miller
- Dominic Cooper sem Milton H. Greene
- Julia Ormond sem Vivien Leigh
- Derek Jacobi sem Sir Owen Morshead
- Zoë Wanamaker sem Paula Strasberg
- Richard Clifford sem Richard Wattis