Robin Williams

Bandarískur leikari (1951–2014)

Robin McLaurin Williams (21. júlí 195111. ágúst 2014) var bandarískur uppistandari og leikari. Meðal kvikmynda sem hann lék í eru Stjáni blái (1980), Good Morning, Vietnam (1987), Dead Poets Society (1989), Awakenings (1990), og Good Will Hunting (1997).

Robin Williams
Fæddur
Robin McLaurin Williams

21. júlí 1951(1951-07-21)
Dáinn11. ágúst 2014 (63 ára)
ÞjóðerniBandarískur
StörfLeikari, uppstandari
Ár virkur1972–2014
MakiValerie Velardi (1978–1988)
Marsha Garces (1989–2011)
Susan Schneider (2011)
Börn3

Hann var tilnefndur til óskarsverðlaunanna sem besti leikari þrisvar og vann verðlaun fyrir besta aukaleikara fyrir myndina Good Will Hunting. Hann vann tvö Emmy verðlaun, fjögur Golden Globe-verðlaun, tvö Screen Actors Guild-verðlaun og fimm Grammy-verðlaun.

Williams átti við þunglyndi og áfengissýki að stríða yfir mestallann ferilinn. 11. ágúst 2014 fannst hann látinn eftir að hafa framið sjálfsmorð með hengingu á heimili sínu í Paradise Cay, Kalifornía.[1]

Tilvísanir

breyta
  1. Martin, Nick (13. ágúst 2014). „San Francisco Neighbours Mourn Robin Williams“. Sky News. BSkyB. Sótt 13. ágúst 2014.

Tenglar

breyta
   Þetta æviágrip sem tengist leikurum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.