Prótagóras
Prótagóras (forngríska: Πρωταγόρας) (490 – 420 f.Kr.) frá Abderu var forngrískur fræðari og heimspekingur. Í samræðunni Prótagóras eignar Platon honum að hafa fyrsti atvinnufræðarinn og dygðarkennari.
Prótagóras | |
---|---|
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 490 f.Kr. |
Svæði | Vestræn heimspeki |
Tímabil | Fornaldarheimspeki |
Skóli/hefð | Sófismi |
Helstu ritverk | Sannleikurinn |
Helstu kenningar | Sannleikurinn |
Helstu viðfangsefni | Siðfræði, mælskufræði |
Prótagóras virðist hafa verið afstæðishyggjumaður en frægastur er hann fyrir að hafa haldið því fram að „maðurinn [sé] mælikvarði allra hluta, þeirra sem eru að þeir séu og þeirra sem eru ekki að þeir séu ekki“.[1]
Prótagóras var einnig efasemdamaður. Í ritgerð sinni Um guðina, sem er ekki varðveitt, skrifaði hann: „Varðandi guðina hef ég enga leið til þess að vita hvort þeir eru til eða ekki eða hvernig þeir eru, vegna þess hve óljóst málið er og hve lífið er stutt.“[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ Platon, Þeætetos 152A, sbr. Sextos Empeirikos, AM VII.60.
- ↑ DK 80B4.
Tengt efni
breytaTengill
breyta
Forverar Sókratesar |
Míletosmenn :
Þales ·
Anaxímandros ·
Anaxímenes |