Þrasýmakkos
Þrasýmakkos (forngríska: Θρασύμαχος; um 459-400 f.Kr.) var forngrískur fræðari sem er þekktastur úr Ríkinu eftir Platon.
Hinn sögulegi Þrasýmakkos
breytaÞrasýmakkos var frá Kalkedon við Svartahafið. Hann var fræðari og starfaði einkum í Aþenu. Hann fékkst meðal annars við mælskufræði og stjórnmálafræði.
Varðveitt er brot úr verki hans Um stjórnskipun.
Þrasýmakkos hjá Platoni
breytaÞrasýmakkos bregður fyrir í 1. bók Ríkisins eftir Platon þar sem honum er lýst sem skapbráðum og ofstopafullum manni. Þrasýmakkos ver þar þá kenningu að réttlæti sé ekkert annað en það sem kemur sér vel fyrir þann sterkari. Nafn hans merkir „sá sem berst af ákafa“ og kann það að vera skýringin á hlutverki hans í samræðunni.
Tenglar
breyta- Stanford Encyclopedia of Philosophy: „Callicles and Thrasymachus“
- The Internet Encyclopedia of Philosophy: „Thrasymachus“
Forverar Sókratesar |
Míletosmenn :
Þales ·
Anaxímandros ·
Anaxímenes |