Panathinaikos
Panathinaikos eða Panathinaikos Athlitikos Omilos er grískt knattspyrnufélag frá Aþenu. Félagið er það næstsigursælasta í grísku knattspyrnunni og hefur náð bestum árangri grískra félagsliða á alþjóðavettvangi.
Saga
breytaPanathinaikos var stofnað árið 1908 þegar hópur knattspyrnumanna gekk úr íþróttafélaginu Panellinios G.S., einu elsta íþróttafélagi Grikklands, til að mótmæla þeirri ákvörðun þess að leggja niður knattspyrnuæfingar.
Hið nýja félag skipti nokkrum sinnum um nafn, en tók upp heitið Panathinaikos árið 1924. Áður hafði það tekið upp merki sitt, mynd af grænum þriggja laufa smára, fyrir tilstuðlan ensks þjálfara sem kom félaginu í fremstu röð á öðrum áratugnum.
Keppni um Grikklandsmeistaratitilinn hófst árið 1927. Panathinkaikos fór með sigur af hólmi árið 1930, en síðan ekki aftur fyrr en árið 1960. Þá rann upp gullöld félagsins sem varð átta sinnum Grikklandsmeistari á árunum 1960-72. Undir lok þessa tímabils var liðið undir stjórn hinnar kunnu ungversku knattspyrnukempu Ferenc Puskás, en undir hans stjórn komst Panathinaikos alla leið í úrslit Evrópukeppni meistaraliða, þar sem það tapaði 2:0 gegn Ajax á Wembley.
Á seinni hluta níunda áratugarins hófst nýtt blómaskeið hjá Panathinaikos. Liðið varð fjórum sinnum grískur meistari frá 1990 til 1996. Síðastnefnda árið komst liðið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu, en tapaði fyrir Ajax.
Panathinaikos varð síðast grískur meistari árið 2010. Það var tuttugasti meistaratitill liðsins, Erkifjendur liðsins, Olympiacos, geta þó státað af nærri tvöfalt fleiri titlum.
Rígar
breytaPanathinaikos á í miklum og langvinnum ríg við annað stórlið frá Aþenu, Olympiacos. Panathinaikos var stofnað í miðborg Aþenu í hverfi þar sem efnameira fólk bjó. Olympiacos var hins vegar var stofnað rétt fyrir utan Aþenu árið 1925 og byrjaði fólk úr stétt verkamanna smám saman að styðja Olympiacos. Olympiacos náði fljótt mikilli velgengni sem leiddi til þess að fólk um allt Grikkland byrjaði að styðja liðið. Fólk úr lægri stéttum byrjaði að líta á Olympiacos sem sitt lið og Panathinaikos var álitið elítunnar í Grikklandi. Félagslegt óréttlætti í Grikklandi varð til þess að oft var mikill hiti á milli stuðningsmanna liðanna. Undanfarin ár hefur munur á milli stétta í Grikklandi minnkað og þess vegna er rígurinn ekki eins tilfinningaþrunginn en samt sem áður einkennast leikir liðanna af miklum ólátum á milli liðanna. Skemmdir á leikvöngum, flugeldar og annars konar skemmdarverk gerast reglulega.
Einn alræmdasti leikur á milli liðanna átti sér stað árið 2019 á heimavelli Panathinaikos, Leoforos Alexandras leikvanginum. Í þessum leik sauð upp úr á milli stuðningsmanna beggja liða og var miklu og grófu ofbeldi beitt á báða boga. Gera þurfti hlé á leiknum eftir 20 mínútur og leikmenn sendir inn í búningsklefa á meðan lögregla stöðvaði ólætin. Leikurinn hófst að nýju eftir 8 mínútur, en á 70. mínútu flautaði dómarinn leikinn af þar sem slagsmálin ógnuðu öryggi leikmanna og dómara. Stuðningsmenn héldu hins vegar slagsmálunum áfram bæði í stúkunni og fyrir utan leikvanginn.[1]
Tengsl við Ísland
breytaPanathinaikos mætti Frömurum í fyrstu umferð Evrópukeppni meistaraliða árið 1991, eftir tvö jafntefli.
Íslenski landsliðsmaðurinn Helgi Sigurðsson lék með Panathinaikos á árunum 1999-2001. Hann lék 32 leiki með aðalliðinu og skoraði í þeim tíu mörk.
Hörður Björgvin Magnússon gerði samning við félagið sumarið 2022 og Sverrir Ingi Ingason 2024.
Ytri vefir
breytaHeimildir
breytaFIFA (Apríl 2023). „Olympiacos vs Panathinaikos: "The mother of All Battles" in Greek Football“. FIFA. Sótt Nóvember 2023.
- ↑ FIFA (Apríl 2023). „Olympiacos vs Panathinaikos: "The mother of All Battles" in Greek Football“. FIFA. Sótt Nóvember 2023.