Ole Gunnar Solskjær

Ole Gunnar Solskjær (fæddur í 26. febrúar 1973 í Noregi) er fyrrum knattspyrnumaður og knattspyrnuþjálfari. Hann er fyrrum leikmaður hjá Manchester United.

Ole Gunnar Solskjær
Upplýsingar
Fullt nafn Ole Gunnar Solskjær
Fæðingardagur 26. febrúar 1973 (1973-02-26) (51 árs)
Fæðingarstaður    Kristiansund, Noregur
Hæð 178 cm
Leikstaða Framherji
Yngriflokkaferill
1980-1990 Clausenengen
Meistaraflokksferill1
Ár Lið Leikir (mörk)
1990-1995 Clausenengen 109 (115)
1995-1996 Molde F.K. 42 (31)
1996-2007 Manchester United 235 (91)
Landsliðsferill
1994-1995
1995-2007
Noregur U-21
Noregur
19 (13)
67 (23)
Þjálfaraferill
2008-2011
2011-2014
2014
2015-2018
2018-2021
Manchester United Academy
Molde F.K.
Cardiff City
Molde F.K.
Manchester United

1 Leikir með meistaraflokkum og mörk
talið í aðaldeild liðsins.

Ferill

breyta

Áður en hann kom til Englands spilaði hann með 3. deildar liðinu Norwegian Clausenengen F.K. Árið 1994 fór hann til Molde F.K. sem lék í efstu deild Noregs. Ole skoraði 31 mark í 42 leikjum fyrir Molde.

Manchester United

breyta

Tveimur árum seinna var Alex Ferguson, þjálfari Manchester United í leit að framherja og ætlaði sér að kaupa í Alan Shearer þáverandi framherja Blackburn, sem hafnaði boðinu og gekk til liðs við Newcastle United. Í staðinn ákvað Sir Alex að kaupa Ole Gunnar.

Á fyrsta tímabili Solskjær vann United ensku úrvalsdeildina og skoraði Ole 18 mörk.

Árið 2001 var Ruud van Nistelrooy keyptur og fékk þá Ole ekki eins mikið að spila. Árið 2002-03 seldi Ferguson Andy Cole og Dwight York og keypti þess í stað Diego Forlan. Ferguson breytti þá leikplaninu og spila Van Nistelrooy einum í sókninni. Sama ár varð hnjask í herbúðum Manchester United þegar David Beckham meiddist en þá var Ole færður út á kant.

Leiktíðina 2003-04 meiddist Solskjær illa á hné og gat ekki spilað nánast alla leiktíðina og en þá komu inn Alan Smith, David Bellion, og Louis Saha ásamt Wayne Rooney sem var nýlega keyptur til liðsins.

Árið 2007 lagði hann skóna á hilluna eftir að hafa átt við erfið hnémeiðsli að stríða í nokkur ár. Eftirminnilegasta atvik á ferlinum hans eru líklega þegar hann skoraði 4 mörk á móti Nottingham Forrest, leikurinn endaði 8-1. Einnig var markið í úrslitum meistaradeildarinnar árið 1999 þegar hann skoraði sigurmarkið í uppbótartíma gegn Bayern Munich og endaði sá leikur 2-1.

Þjálfaraferill

breyta

Solskjær tók við þjálfun norska félagsins Molde F.K. í nóvember 2010[1] og gerði þá að meisturum á fyrsta ári sem þjálfari liðsins.[2]

Fyrir jólin 2018 tók Solskjær við Manchester United sem bráðabirgðastjóri út tímabilið eftir að José Mourinho var rekinn. Í mars 2019 gerði Ole 3 ára samning við félagið [3].

Solskjær var rekinn í nóvember 2021 eftir slök úrslit, aðeins 1 sigur í síðustu 7 leikjum og slæm töp gegn Liverpool og Watford.

Tilvísanir

breyta
  1. Solskjær tekinn við MoldeVísir, skoðað 29. mars, 2019.
  2. Solskjær gerði Molde að meisturumRúv, skoðað 28. mars, 2019
  3. Ole Gunnar verður við stýrið næstu 3 árin Vísir, skoðað 28. mars, 2019.