Norræn sönghátíð
Norræn sönghátíð eða Norrænt stúdentakóramót, NSSS er mót sem haldið er á þriggja ára fresti á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum.
Forsaga
breytaFrá árinu 1987 hafa háskólakórar á Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum safnast saman til eins konar kórmóts. Fyrsti fundurinn var haldinn árið 1987 undir nafninu Norrænu stúdentakórfundur á vegum háskólakórsins í Linköping. Þá var tekin upp gömul 19. aldar hefð þegar skandinaviskir kórar ferðuðust um Skandinavíu á járnbrautarlestum og bátum til að hittast. Á fyrsta fundinum, var áhesrla einkum lögð á leiðbeiningar, kennsla og félagsskap. Frá 1996, þegar 1400 söngvarar fluttu Carl Orff's Carmina Burana í Kaupmannahöfn og í Tallinn níundu sínfoniu Beethovens, urðu fundirnir meira opinberir viðburðir. Í Lappeenranta (Lappeenranta) í Finnlandi voru frumflutt tvö verk: Leif Segerstams Symphony nr. 111 og Marcus Fagerudds Das Lied des Wassers undir stjórnun Leif Segerstams.
Tilgangur
breytaTilgangur NSSS er að safna kórum á Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum, undir merkjum vináttu og félagsskapar og með fyrsta flokks tónlist. NSSS mótið verður haldið á þriggja ára fresti í viðkomandi löndum.
NSSS 1987-2020
breyta- 2025 NSSS XI, Linköping, Svíþjóð
- 2020 NSSS, Þrándheimur, Noregur (aflýst)
- 2017 NSSS X[1], Oulu (Uleåborg), Finnland
- 2014 NSSS IX, Tartu, Eistland
- 2011 NSSS VIII, Linköping, Svíþjóð
- 2008 NSSS VII, Stafangur, Noregur
- 2005 NSSS VI, Lappeenranta (Villmanstrand), Finnland
- 2002 NSSS (aflýst)
- 1999 NSSS V, Tallinn, Eistland
- 1996 NSSS IV, Kaupmannahöfn, Danmörk
- 1993 NSSS III, Þrándheimur, Noregur
- 1990 NSSS II, Turku (Åbo), Finnland
- 1987 NSSS I, Linköping, Svíþjóð
Tengt efni
breytaTilvísanir
breyta- ↑ „2017 NSSS X“. Afrit af upprunalegu geymt þann 22. október 2020. Sótt 7. maí 2021.
Tenglar
breyta- NSSS - Nordisk studentsångarstämma Geymt 16 júlí 2009 í Wayback Machine