Minningarkirkja Vilhjálms keisara
Minningarkirkja Vilhjálms keisara (þýska: Kaiser-Wilhelm-Gedächtniskirche) eru kirkjurústir við upp Kurfürstendamm í miðborg Vestur-Berlínar. Hún var hæsta bygging borgarinnar þegar hún eyðilagðist í loftárásum seinni heimstyrjaldarinnar. Í dag er hún minnisvarði um hörmungar stríðsins og var síðustu áratugina eitt helsta kennileiti Vestur-Berlínar, ásamt nýju kirkjunni og kirkjuturni hennar.
Saga kirkjunnar
breytaByggingasaga
breytaMinningarkirkjan var reist til minningar um keisarann Vilhjálm, en hann var nýlátin þegar framkvæmdir hófust. Fyrsta skóflustungan var tekin 22. mars 1891, á afmælisdegi Vilhjálms keisara. Kirkjan var svo vígð 1895. Hún þótti mikilfenglegt mannvirki í nýrómönskum stíl. Kirkjan var með 5 turna, þar af var vesturturninn langhæstur. Hann var 113 metra hár en þar með var kirkjan hæsta bygging Berlínar á þessum tíma. Í kirkjunni voru þó nokkrar mósaíkmyndir. Í anddyrinu til dæmis voru tvennar mósaíkseríur gegnt hvor annarri. Ein þeirra sýndi atriði úr ævi Vilhjálms keisara, en hin semur úr þýsk-franska stríðinu 1870-1871. Klukkurnar í turninum voru þær næststærstu í Þýskalandi. Aðeins klukkurnar í dómkirkjunni í Köln voru stærri. Þær sköpuðu svo mikinn hávaða að úlfarnir í dýragarðinum Zoologischer Garten í nágrenninu fóru að væla í hvert sinn sem þær hringdu. Þegar leið á heimstyrjöldina síðari, varð skortur á málmi fyrir stríðsiðnaðinn. Því voru klukkurnar teknar niður og bræddar í þágu stríðsins.
Eyðilegging
breyta23. nóvember 1943 varð kirkjan fyrir sprengjuregni í loftárásum. Þak kirkjuskipsins hrundi og kirkjan öll brann til kaldra kola. Þak stóra turnsins brotnaði og hrundi niður. Stjórnvöld í Berlín lofuðu að kirkjan yrði endurreist í fyrri dýrð. En ekkert varð úr því. Þjóðverjar töpuðu stríðinu og hernámsveldin höfðu ekki áhuga á að endurreisa kirkjuna. Hún stóð óhreyfð sem rústir í rúman áratug. 1956 voru rústir kirkjuskipsins rifnar niður, ásamt minni turnunum, þar sem mikil hætta var á hruni. Aðeins rústir aðalturnsins fengu að standa eftir. Turninn var þá aðeins 68 metra hár stubbur.
Minningarkirkjan
breyta1959 var turnklukkan í rústunum lagfærð og gangsett. Vísarnir eru lýstir upp með neonljósum. 1987, á 750 ára afmæli Berlínar, var salnum undir turninum breytt í minningasal um stríðið. Einn af sýningagripunum er kross sem gerður er úr þremur málmnöglum. Þeir eru upprunnir úr dómkirkjunni í Coventry en Þjóðverjar nær gjöreyðilögðu þá borg í stríðinu. Krossinn á að vera til tákns um sættir milli Þýskalands og Englands. Minningasalurinn er opinn almenningi.
Nýja kirkjan
breyta1959 var byrjað á því að reisa nýja kirkju við hliðina á gamla turninum. Kirkjan er lág ferningslaga bygging, en við hliðina var hár klukkuturn reistur í sama stíl. Einkenni nýju kirkjunnar og klukkuturnsins eru hinar dökkbláu glerrúður, en þær eru alls um 20 þúsund talsins. Byggingarnar þrjár, nýja kirkjan, klukkuturninn og rústir Minningarkirkjunnar standa saman í hnapp og eru friðaðar. Saman mynduðu þær helsta kennileiti Vestur-Berlínar síðustu áratugi.
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Kaiser-Wilhelm-Gedächtniskirche“ á þýsku útgáfu Wikipedia. Sótt desember 2009.