1213
ár
(Endurbeint frá MCCXIII)
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1213 (MCCXIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
breyta- 4. mars - Þorvaldur Snorrason Vatnsfirðingur fór að Hrafni Sveinbjarnarsyni á Eyri við Arnarfjörð og lét hálshöggva hann. Sturla Bárðarson, systursonur Snorra Sturlusonar, var fóthöggvinn.
Fædd
Dáin
- 4. mars - Hrafn Sveinbjarnarson, höfðingi Seldæla.
- (líklega) - Karl Jónsson, ábóti í Þingeyraklaustri og höfundur Sverris sögu (f. um 1135).
Erlendis
breyta- 15. maí - Jóhann landlausi Englandskonungur gerðist lénsmaður páfastóls. Í staðinn aflétti Innósentíus III banni sem hann hafði lagt á 1208.
- 12. september - Her Albígensakrossferðarinnar undir stjórn Simon de Montfort vann sigur á her Raymonds 6. af Toulouse og Péturs 2. konungs Aragóníu í orrustunni við Muret.
- 12. september - Jakob 1. varð konungur Aragóníu.
- Innósentíus III gaf út páfabréf og boðar til Fimmtu krossferðarinnar til að ná Jerúsalem aftur úr höndum heiðingja.
Fædd
Dáin
- 12. september - Pétur 2. konungur Aragóníu féll í orrustu (f. 1174)
- 24. september - Geirþrúður af Meraníu, kona Andrésar 2. Ungverjalandskonungs (f. 1185).
- Eiríkur Ívarsson, erkibiskup í Niðarósi.