Morð á Íslandi
Á Íslandi eru morð tiltölulega sjaldgæf, rétt rúmlega tvö morð á ári að meðaltali. Tíðnin hérlendis er hundraðfalt lægri en í morðglaðasta ríki heim, El Salvador, um sex sinnum lægri en í Bandaríkjunum, og örlitlu lægri en í Danmörku.[1]
Listi yfir morð á Íslandi
breyta- Sjá ítarlegri lista yfir morð frá 1874–1969, lista yfir morð frá 1970–1999, og lista yfir morð frá 2000
Eini raðmorðingi Íslandssögunnar
breytaAxlar-Björn, eða Björn Pétursson, (um 1555–1596) er eini Íslendingurinn sem vitað er til að hafi gerst sekur um raðmorð. Sagan segir að móður hans hafi þyrst í blóð á meðan hún gekk með Björn, og hafi faðir Björns gefið henni blóð úr sér að drekka. Ungur var hann sendur í vist hjá Ormi Þorleifssyni ríka að Knerri, en þar dysjaði hann fyrsta fórnarlamb sitt í flórnum í fjósinu. Er hann náðist árið 1596 játaði hann á sig 18 morð, en ekki er þó hægt að staðfesta þá tölu. Eftir fyrsta fórnarlambið myrti Björn aðallega ferðamenn og farandverkamenn sem áttu leið hjá landi hans, Öxl við Búðavík á Snæfellsnesi. Þeim fórnarlömbum sökkti hann í Íglutjörn fyrir neðan túnið á bænum. Kona og þrjú börn hennar höfðu beðið um gistingu hjá Birni en Björn lokkaði börnin til sín eitt í einu og drap. Móðir þeirra komst undan og gat sagt frá því sem hún varð vitni að. Eftir að upp komst um Björn var hann dæmdur til dauða á Laugarbrekkuþingi. Hann var tekinn af lífi á Laugarbrekku. Björn var festur niður og útlimir hans brotnir með trésleggjum, en það tók afar langan tíma. Eftir að búið var að mölbrjóta útlimi hans var hann afhöfðaður og síðan var líkami hans bútaður niður og einstakir partar stjaksettir, meðal annars höfuð hans. Kynfærum hans var fleygt í fang konu hans, Steinunnar/Þórdísar (heimildum ber ekki saman um nafn hennar), sem var látin fylgjast með aftöku bónda síns. Hún var hýdd fyrir glæpi sína. Ekki finnst annar eins morðingi í sögum Íslendinga og er Axlar-Björn því bæði sérstaklega óhugnanlegur og einstakur.[6]
Afbrotatölfræði lögreglunnar
breytaSamkvæmt ársskýrslu ríkislögreglustjóra fyrir árið 2011 voru framin 28 morð á árunum 1999 til 2011. Það eru rétt rúm tvö morð á ári að meðaltali. Í níu tilvikum var fórnarlambið kona, en í sautján tilvikum var fórnarlambið karl. Ef morðunum árin 2012 og 2013 er bætt við eru kvenþolendur í heild ellefu talsins, en karlþolendur átján. Með þeim morðum eru þau í heildina frá 1999 31 talsins. Árin 1998, 2003, 2006 og 2008 voru ekki framin nein morð hér á landi.[7]
Refsiþyngd
breytaYfirleitt eru morðdómar 16 ár. En þyngstu dómar sem fallið hafa í morðmáli á Íslandi eru á bilinu 17-20 ára fangelsi en það eru 6 dæmi um dóma á því bili.[8] Héraðsdómur Reykjavíkur og Sakadómur Reykjavíkur hafa dæmt fólki í lífstíðarfangelsi eins og almenn hegningarlög heimila.
Sjá einnig
breytaTilvísanir
breyta- ↑ „UNODC Statistics Online“. United Nations Office On Drugs and Crime. Sótt 12. maí 2018.".
- ↑ https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-04-09-mord-a-13-ara-stulku-a-timum-hernamsins-oskrad
- ↑ https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-04-09-mord-a-13-ara-stulku-a-timum-hernamsins-oskrad
- ↑ https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-04-09-mord-a-13-ara-stulku-a-timum-hernamsins-oskrad
- ↑ https://www.ruv.is/frettir/innlent/2023-04-09-mord-a-13-ara-stulku-a-timum-hernamsins-oskrad
- ↑ Axlar-Björn Axlar-Björn Geymt 28 mars 2013 í Wayback Machine Hver var Axlar-Björn?
- ↑ Afbrotatölfræði 2011[óvirkur tengill]
- ↑ Thomas dæmdur í nítján ára fangelsi Vísir, skoðað 29. sept, 2017.
Ár | Stutt lýsing | Staðsetning | Nánari lýsing |
---|---|---|---|
1692 | Morðið við Gíslakletta. Kona að nafni Ingibjörg Oddsdóttir myrðir eiginmann sinn, Gísla Pétursson. Hafði verið að halda við danska verslunarmanninn Pétur Wibe. Síðan eru Gíslaklettar svo nefndir. | Vestmannaeyjar | [Lesa meira] |
1874 | Nýfætt barn myrt | [Lesa meira] | |
1877 | Nýfætt barn myrt | [Lesa meira] | |
1891 | Kona kæfð og hent í á | Norðurland eystra | [Lesa meira] |
1893 | Nýfætt barn myrt | Þistilfjörður, Norðurlandi eystra | [Lesa meira] |
1893 | Nýfætt barn myrt | Egilsstaðir | [Lesa meira] |
1903 | Barn deyr eftir mikla vanrækslu | Vestur-Skaftafellsýsla, Suðurlandi | [Lesa meira] |
1906 | Nýfætt barn myrt | Bíldudalur, Vestfjörðum | [Lesa meira] |
1913 | Nýfætt barn myrt | Furufjörður, Vestfjörðum | [Lesa meira] |
Kona byrlar bróður sínum rottueitur | Reykjavík | [Lesa meira] | |
1929 | Þjófur myrðir húseiganda | Reykjavík | [Lesa meira] |
1941 | Tveir bandarískir hermenn skjóta á hóp manna og einn deyr[2] | Hafnarfjörður | |
1942 | Bandarískur hermaður skýtur á bíl sem sinnir ekki stöðvunarmerki og drepur farþega[3] | Reykjavík | |
1942 | Bandarískur hermaður skýtur 12 ára dreng í höfuðið[4] | Reykjavík | |
1944 | Bandarískur hermaður ræðst á 13 ára stúlku[5] | Reykjavík | |
1945 | Óupplýst morð á prentara sem myrtur var með barefli | Reykjavík | [Lesa meira] |
1947 | Maður ræðst á 2 ára stúlku með hníf í braggahverfi | Reykjavík | [Lesa meira] |
1952 | Maður skýtur eiginkonu sína og síðan sjálfan sig | Kópavogur | [Lesa meira] |
1953 | Maður eitrar fyrir sér og allri fjölskyldu sinni | Reykjavík | [Lesa meira] |
Líkamsárás á skemmtanalífinu | Keflavík | [Lesa meira] | |
1957 | Maður skýtur unnustu sína. | Hveragerði | [Lesa meira] |
1958 | Hnífsárás eftir heimiliserjur | [Lesa meira] | |
1959 | Ölvaður maður brýst inn á elliheimili og kyrkir konu | Akranes | [Lesa meira] |
1961 | Maður ber konu sína til dauða | Reykjavík | [Lesa meira] |
1963 | Óupplýst líkamsárás | Reykjavík | [Lesa meira] |
1966 | Maður skýtur kærasta sinnar fyrrverandi og síðan sjálfan sig. | Reykjavík | [Lesa meira] |
1967 | Maður stingur fyrrverandi eiginkonu sína með hníf | Reykjavík | [Lesa meira] |
1968 | Óupplýst morð á leigubílstjóra sem skotinn var hnakkann í bifreið sinni | Reykjavík | [Lesa meira] |
Maður skýtur yfirmann sinn eftir að hafa verið rekinn úr vinnu | Reykjavík | [Lesa meira] | |
1971 | Maður stingur konu sína með hníf | Seyðisfjörður | [Lesa meira] |
1973 | Maður skýtur vin sinn með haglabyssu eftir rifrildi | Höfn í Hornafirði | [Lesa meira] |
Maður stingur móður sína með hníf | Reykjavík | [Lesa meira] | |
1974 | Maður bundinn og kyrktur | Reykjavík | [Lesa meira] |
Hnífsárás | Reykjavík | [Lesa meira] | |
Óupplýst morð eftir slagsmál | Reykjavík | [Lesa meira] | |
Hnífsárás | Reykjavík | [Lesa meira] | |
1975 | Hnífsstunga í kjölfar slagsmála | Ólafsvík | [Lesa meira] |
1976 | Slagsmál milli vina enda með því að annar er kyrktur | Reykjavík | [Lesa meira] |
Unglingur skýtur mann með riffli | Akureyri | [Lesa meira] | |
Unglingar slá grjóthnullungi í höfuð manns | Kópavogur | [Lesa meira] | |
Innbrotsþjófur slær húsráðenda í höfuðið með kúbeini | Reykjavík | [Lesa meira] | |
1977 | Líkamsárás á samfanga | Reykjavík | [Lesa meira] |
Maður skýtur unnustu sína og gerir tilraun til sjálfsmorðs | Reykjavík | [Lesa meira] | |
1978 | Kona ræðst á mann sinn með hníf | Reykjavík | [Lesa meira] |
Maður sviptir sig og konu sína lífi | Mosfellssveit | [Lesa meira] | |
Unglingur kyrkir vinkonu sína eftir rifrildi | Vestfirðir | [Lesa meira] | |
1979 | Hnífsárás | Reykjavík | [Lesa meira] |
Maður lemur móður sína í höfuðið með kertastjaka | Reykjavík | [Lesa meira] | |
1980 | Maður ræðst á tvo skipsfélaga sína með hníf og kastar sjálfum sér síðan í sjóinn. | Úti á sjó | [Lesa meira] |
1981 | Kona hellir bensíni yfir mann sinn og kveikir í. | Reykjavík | [Lesa meira] |
Maður stingur annan með skærum eftir kynferðisárás. | Reykjavík | [Lesa meira] | |
1982 | Maður skýtur franska konu sem hafði fengið far hjá honum eftir að rifrildi braust út | Skeiðarársandur, Suðausturlandi | [Lesa meira] |
1983 | Hnífsárás í nýárspartíi | Reykjavík | [Lesa meira] |
1985 | Maður brenndur inni | Kópavogur | [Lesa meira] |
Hnífsárás í kjölfar slagsmála | Reykjavík | [Lesa meira] | |
1988 | Maður kyrkir eiginkonu sína | Reykjavík | [Lesa meira] |
Maður skýtur konu sína og síðan sjálfan sig | Keflavík | [Lesa meira] | |
Maður kyrkir konu eftir dansleik. | Kópavogur | [Lesa meira] | |
Maður í geðrofi af völdum ofskynjunarlyfsins LSD ræðst á annan með hníf. | Reykjavík | [Lesa meira] | |
1989 | Ungum dreng drekkt í á. Gerandinn var 12 ára og drekkti öðrum næsta ár. | Akureyri | [Lesa meira] |
1990 | Ræningjar ráðast á afgreiðslumann á bensínstöð | Reykjavík | [Lesa meira] |
Ungum dreng drekkt í á. Gerandinn var 12 ára og hafði drekkt öðrum árið áður. | Akureyri | [Lesa meira] | |
1991 | Maður ræðst á konu, bæði voru þau á meðferðarheimili fyrir þroskahamlaða. | Reykjavík | [Lesa meira] |
Hnífsárás á heimili | Reykjavík | [Lesa meira] | |
Grunnskólanemar ræna mann og veita honum höfuðáverka | Reykjavík | [Lesa meira] | |
1992 | Heimiliserjur | Vestmannaeyjar | [Lesa meira] |
1993 | Dæmdur morðingi stingur mann með hníf | Reykjavík | [Lesa meira] |
1995 | Drengur ekur á hjólreiðamann sem hafði átt barn með móður hans. | Hafnarfjörður | [Lesa meira] |
1996 | Maður skýtur annan með haglabyssu. Sá myrti átti að hafa misnotað morðingjann kynferðislega á unglingsárum hans. | Hafnarfjörður | [Lesa meira] |
1997 | Drengur ræðst á stjúpföður sinn með hníf á nýársnótt. | Sandgerði, Reykjanesskaga | [Lesa meira] |
Slagsmál á nektarstað | Reykjavík | [Lesa meira] | |
Tvíburabræður ræna manni og veita honum höfuðhögg | Heiðmörk, nærri Reykjavík | [Lesa meira] | |
1999 | Hnífsárás | Reykjavík | [Lesa meira] |
Þjófur brýst inn til gamallar konu og stingur hana með hníf | Reykjavík | [Lesa meira] | |
2000 | Maður skýtur föður sinn með riffli, mögulega af slysni. | [Lesa meira] | |
Kona stungin ítrekað með hníf | [Lesa meira] | ||
Konu hrint fram af svölum á 10. hæð í blokk | Kópavogur | [Lesa meira] | |
Kona kyrkir vin sinn í veislu | Reykjavík | [Lesa meira] | |
Maður sleginn í höfuð með hamri | [Lesa meira] | ||
2001 | Maður stunginn ítrekað með hníf, laminn með kylfu, og kæfður með plastpoka. Morðinginn taldi að verið væri að veitast að sér kynferðislega. | Reykjavík | [Lesa meira] |
2002 | Maður undir áhrifum fíkniefna ræðst á annan með kjötexi án ástæðu. | Reykjavík | [Lesa meira] |
Kona stingur mann sinn eftir að hann barði hana. | [Lesa meira] | ||
Kona kyrkir níu ára dóttur sína | Reykjavík | [Lesa meira] | |
Líkamsárás á næturlífinu | Reykjavík | [Lesa meira] | |
Hnífsárás á heimili | Reykjavík | [Lesa meira] | |
2004 | Móðir stingur unga dóttur sína með hníf. | Reykjavík | [Lesa meira] |
Maður myrðir sína fyrrverandi með kúbeini og losar sig við líkið úti í hrauni. | [Lesa meira] | ||
Kyrking | Kópavogur | [Lesa meira] | |
Líkamsárás | Keflavík | [Lesa meira] | |
Líkamsárás á veitingastað | Mosfellsbær | [Lesa meira] | |
2005 | Hnífsárás í veislu | Kópavogur | [Lesa meira] |
Hnífsárás | Herstöðin í Keflavík | [Lesa meira] | |
Uppdópaður maður veitist að félaga sínum með hníf | Reykjavík | [Lesa meira] | |
2007 | Maður skotinn með riffli. Morðinginn svipti sig svo lífi. | Reykjavík | [Lesa meira] |
Höfuðáverkar | [Lesa meira] | ||
2009 | Höfuðáverkar | Hafnarfjörður | [Lesa meira] |
2010 | Tilefnislaus líkamsárás. | Reykjanesbær | [Lesa meira] |
Maður brýst inn til forstjóra sælgætisverksmiðju og ræðst á hann með hníf. Maðurinn hafði áður birt myndband af ástarjátningu sinni til kærustu forstjórans. | Hafnarfjörður | [Lesa meira] | |
Maður gengur í skrokk á föður sínum. | [Lesa meira] | ||
2011 | Maður kyrkir kærustu sína | Heiðmörk, nærri Reykjavík | [Lesa meira] |
Móðir kyrkir nýfætt barn sitt og sker í andlit þess | Reykjavík | [Lesa meira] | |
Maður stunginn til bana á veitingastað | Reykjavík | [Lesa meira] | |
2012 | Maður stingur unnustu sína með hníf | Hafnarfjörður | [Lesa meira] |
2013 | Maður hristir ungt barn sitt harkalega. | [Lesa meira] | |
Hnífsárás á heimili | Egilsstaðir | [Lesa meira] | |
Lögregla skýtur geðveilan mann á heimili sínu sem hafði skotið á móti þeim | Reykjavík | [Lesa meira] | |
2014 | Maður kyrkir eiginkonu sína | Reykjavík | [Lesa meira] |
2015 | Kona stingur sambýlismann sinn með hníf | Hafnarfjörður | [Lesa meira] |
Kyrking | Akranes | [Lesa meira] | |
Morð í búsetukjarna fyrir geðfatlaða | Reykjavík | [Lesa meira] | |
2016 | Maður skýtur konu sína og síðan sjálfan sig | Akranes | [Lesa meira] |
2017 | Grænlenskur sjómaður tekur stúlku upp í bíl sinn niðri í miðbæ Reykjavíkur og kastar henni út í sjó á Suðurlandi. | Suðurland | [Lesa meira] |
Líkamsárás í Mosfellsdal | Nágrenni Reykjavíkur | [Lesa meira] | |
Maður slær konu með glerflöskum og slökkvitæki vegna öfundar | Reykjavík | [Lesa meira] | |
Hnífsárás um nótt. Ungur albanskur maður myrtur. | Reykjavík | [Lesa meira] | |
2018 | Maður ræðst á bróður sinn | Suðurland | [Lesa meira] |
Tveir látast í eldsvoða eftir að kveikt er í pítsukassa | Suðurland | [Lesa meira] | |
2019 | Manni hrint af svölum | Reykjavík | [Lesa meira] |
2020 | Kona fannst látin á heimili sínu. Grunur um saknæmt athæfi kom fram í krufningu | Sandgerði | [Lesa meira] |
Sonur réðst á móður og stjúpföður með hníf | Hafnarfjörður | [Lesa meira] | |
Þrír létust í eldsvoða eftir að kveikt var í húsi á Bræðraborgarstíg | Reykjavík | [Lesa meira] | |
2021 | Maður skotinn til bana fyrir utan heimili hans í austurbænum | Reykjavík | [Lesa meira] |
Maður lést eftir líkamsárás í Kópavogi | Reykjavík | [Lesa meira] | |
2022 | Maður finnst látinn fyrir framan heimili sitt | Reykjavík | [Lesa meira] |
Kona myrt á heimili sínu, árásaraðili deyr á staðnum | Blönduós | [Lesa meira] | |
Maður stunginn til bana í heimahúsi | Ólafsfjörður | [Lesa meira] | |
2023 | Maður stunginn til bana á bílastæði í Hafnarfirði | Hafnarfjörður | [Lesa meira] |
Konu ráðinn bani í heimahúsi | Selfoss | [Lesa meira] | |
Maður stunginn til bana í Hafnarfirði | Hafnarfjörður | [Lesa meira] | |
Maður lést í heimahúsi eftir líkamsárás | Reykjavík | [Lesa meira] |