Lee Harvey Oswald
Lee Harvey Oswald (18. október 1939 – 24. nóvember 1963) var bandarískur marxisti og fyrrum landgönguliði í Bandaríkjaher sem myrti John F. Kennedy Bandaríkjaforseta þann 22. nóvember árið 1963. Oswald hafði verið leystur úr herþjónustu eftir að hann gekk til liðs við Sovétríkin í október árið 1959. Hann bjó í hvítrússnesku borginni Minsk þar til í júní árið 1962, en þá sneri hann heim til Bandaríkjanna ásamt rússneskri eiginkonu sinni, Marínu, og settist að í Dallas. Oswald hlaut styrk frá utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna til þess að snúa aftur heim þar sem umsókn hans um sovéskan ríkisborgararétt hafði verið synjað.[1]
Lee Harvey Oswald | |
---|---|
Fæddur | 18. október 1939 |
Dáinn | 24. nóvember 1963 (24 ára) |
Dánarorsök | Myrtur |
Þekktur fyrir | Morðið á John F. Kennedy |
Maki | Marína Níkolajevna Prúsakova (g. 1961) |
Börn | 2 |
Undirskrift | |
Fimm rannsóknarlið sem skipuð voru af ríkisstjórninni komust að þeirri niðurstöðu að Oswald hefði skotið Kennedy til bana frá sjöttu hæð Texas-skólabókasafnsins á meðan Kennedy ók á opnum bíl um Dealey-torg í Dallas. Um 45 mínútum eftir að Oswald drap Kennedy skaut hann einnig lögreglumanninn J. D. Tippit til bana úti á götu.[1] Oswald flúði síðan inn í kvikmyndahús en var þar handtekinn fyrir morðið á Tippit. Oswald var síðan ákærður fyrir morðið á Kennedy en neitaði sök og sagðist vera „blóraböggull“. Tveimur dögum síðar réðst næturklúbbseigandinn Jack Ruby að Oswald í beinni útsendingu í kjallara lögreglustöðvarinnar í Dallas og skaut hann til bana.
Í september árið 1964 úrskurðaði Warren-nefndin að Oswald hefði verið einn að verki og hefði myrt Kennedy með því að skjóta þremur skotum úr glugga Texas-skólabókageymslunnar.[2] Þessi niðurstaða var í samræmi við fyrri rannsóknir alríkislögreglunnar, leyniþjónustunnar og lögreglunnar í Dallas. Niðurstaðan er mjög umdeild þrátt fyrir að rannsóknir á byssukúlunum, vettvangi glæpsins og vitnisburði sjónarvotta styðji hana. Skoðanakannanir benda til þess að meirihluti Bandaríkjamanna efist um opinberu skýringuna á morðinu og fjöldi samsæriskenninga hefur verið lagður fram í gegnum árin.
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 „Einkennilegur æviferill“. Morgunblaðið. 26. nóvember 1963. Sótt 4. nóvember 2018.
- ↑ „Fullsannað að Oswald var einn morðinginn“. Vísir. 28. september 1964. Sótt 4. nóvember 2018.