Lay Low
Íslensk söng- og tónlistarkona
Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir (f. 10. september 1982), betur þekkt sem Lay Low er íslensk söng- og tónlistarkona.
Lay Low | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fædd | Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir 10. september 1982 London, England |
Uppruni | Ísland |
Ár virk | 2006–í dag |
Stefnur | |
Hljóðfæri |
|
Útgáfufyrirtæki | Cod Music |
Vefsíða | laylow |
Hún hefur samið tónlist aðallega í stíl blúss, þjóðlagatónlistar og kántrí. Lovísa hóf ferilinn í hljómsveitinni Benny Crespo's Gang þar sem hún spilaði á hljómborð og gítar. Árið 2006 vann hún verðlaun fyrir bestu söngkonuna á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir sólóplötu sína Please Don't Hate Me.
Hún hefur hitað upp fyrir Emilíönu Torrini á heimstónleikaferðalagi hennar og Of Monsters and Men á tónleikaferðalagi þeirra í Bandaríkjunum.
Lovísa samdi lagið „Með hækkandi sól“ með systrunum Siggu, Betu og Elínu sem voru fulltrúar Íslands fyrir Eurovision 2022.
Hún fæddist í London og á föður frá Srí Lanka.
Tónlistarferill
breytaSóló
breyta- Please Don't Hate Me (2006)
- Ökutímar (2008)
- Farewell Good Night's Sleep (2008)
- Flatey (CD + DVD) (2009)
- Brostinn strengur (2011)
- Live at Home (2013)
- Talking About the Weather (2015)
Benny Crespo's Gang
breyta- Benny Crespo's Gang (2007)
Smáskífur
breyta- „Ekkert þras“ (2013) (ásamt Agli Ólafssyni, Moses Hightower og Högna Egilssyni)
- „Taktu númer og bíddu við“ (með Björgvini Halldórssyni) (2013)
- „Gently“ (2013)
- „Þannig týnist tíminn“ (2012) (með Ragnari Bjarnasyni) (Dúettar)
Tenglar
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Lay Low.
- Opinber vefsíða Geymt 7 desember 2022 í Wayback Machine (á ensku)