Of Monsters and Men
Of Monsters and Men er íslensk hljómsveit sem spilar þjóðlagapopp. Árið 2010 vann bandið Músíktilraunir, sem er árleg keppni hljómsveita á Íslandi.
Of Monsters and Men | |
---|---|
Upplýsingar | |
Önnur nöfn | Songbird[1] |
Uppruni | Garðabær, Keflavík, Ísland |
Ár | 2010–núverandi |
Stefnur | Þjóðlagapopp |
Útgáfufyrirtæki | Record, Republic Records |
Meðlimir | Nanna Bryndís Hilmarsdóttir Ragnar Þórhallsson Brynjar Leifsson Arnar Rósenkranz Hilmarsson Kristján Páll Kristjánsson |
Fyrri meðlimir | Árni Guðjónsson |
Vefsíða | ofmonstersandmen.com |
Meðlimir hljómsveitarinnar, sem koma úr Keflavík og Garðabæ, eru Nanna Bryndís Hilmarsdóttir (söngur/gítar), Ragnar „Raggi“ Þórhallsson (söngur/gítar), Brynjar Leifsson (gítar), Arnar Rósenkranz Hilmarsson (trommur), Páll Kristjánsson (bassi).
Saga hljómsveitarinnar
breytaHljómsveitin var byggð upp úr mismunandi sólóverkefnum. Upphafið var þegar Nanna Bryndís ákvað að bæta við sitt sólóverkefni Songbird. Hljómsveitin spilaði á Músíktilraunum með fjóra meðlimi, Nönnu Bryndísi, Ragga, Brynjari og Arnari. Eftir Músíktilraunir bættu þau við Árna og Kristjáni og byrjuðu að spila á tónleikum og vinna að nýjum lögum. Tónleikar á Iceland Airwaves var hluti af verðlaunum frá Músíktilraunum og það var þar sem bandaríska útvarpsstöðin frá Seattle KEXP tók upp lagið Little Talks frá stofutónleikum Of Monsters and Men. Hljómsveitin fór á í Norður-Ameríku túr fyrst árið 2012 og var uppselt á alla 20 tónleika þeirra þar.
My Head Is An Animal (2011–2013)
breytaMy Head Is An Animal er fyrsta plata bandsins og kom út í september 2011 á Íslandi undir plötufyrirtækinu Record Records og í apríl 2012 í Bandaríkjunum undir Universal. Platan hefur farið í gullsölu[2] á Íslandi og fékk hljómsveitin gullplöturnar afhentar um jólin 2011 frá Record Records. Platan fór beint í sjötta sæti bandaríska Billboard-listans og seldi hljómsveitin 55 þúsund eintök í fyrstu viku í sölu í Bandaríkjunum.[3] Engin íslensk hljómsveit hefur náð svona hátt áður[4] en sala á iTunes taldi mikið.
Into the Woods (2011)
breytaÞann 20. desember 2011 gaf bandið út smáskífuna Into The Woods[5] sem innihélt fjögur ný lög með sveitinni. Þessi lög enduðuð svo á bandarísku útgáfu My Head Is An Animal. Tímaritið Rolling Stone[6] hafði orð á því eftir útgáfu plötunnar að Of Monsters and Men væri hið nýja Arcade Fire og Mumford & Sons Íslands. Into the Woods hefur selst í yfir 50.000 eintökum síðan hún kom út í desember í Bandaríkjunum. [7]
Útgáfur
breytaBreiðskífur
breyta- My Head is an Animal (2011/2012)
- Beneath the Skin (2015)
- Fever Dream (2019)
Stuttskífur
breyta- Into the Woods (2011)
Tónleikaplötur
breyta- Live from Vatnagarðar (2013)
Tilvísanir
breyta- ↑ Hljómsveitasíða Monsters and men Músíktilraunir (skoðað 15. nóvember 2011)
- ↑ http://www.visir.is/of-monsters-and-men-fekk-gullplotu/article/2011111219267 Of Monsters and Men fékk gullplötu
- ↑ „Of Monsters and Men selur 55 þúsund plötur á viku“ á Vísi.is.
- ↑ „Of Monsters and Men í sjötta sæti á Billboard“ á Vísi.is.
- ↑ http://popstache.com/news/of-monsters-and-men-go-into-the-woods-with-a-new-ep/ Geymt 5 mars 2016 í Wayback Machine Of Monsters and Men Go Into The Woods With a New EP
- ↑ http://exystence.net/blog/2012/01/16/of-monsters-and-men-into-the-woods-2011/ Geymt 2 maí 2012 í Wayback Machine The band has been described by Rolling Stone magazine as the new Arcade Fire and Iceland’s Mumford and Sons.
- ↑ http://www.usatoday.com/life/music/ontheverge/story/2012-03-28/of-monsters-and-men-iceland/53875746/1 Geymt 19 apríl 2012 í Wayback Machine Meet Of Monsters and Men