Kentum- og satem-mál
Indóevrópskum tungumálum er skipt í tvo flokka: kentum-mál og satem-mál, miðað við hversu tungubakshljóð (hljóð eins og „k“ og „g“) frumindóevrópsku þróuðust í viðkomandi máli. Dæmi um ólíku þróanir þessara hljóða er orðið yfir „hundrað“ í elstu indóevrópsku málunum sem til eru heimildir um: í kentum-málum byrjaði það oft á /k/ (á latínu var centum borið fram með /k/ í framstöðu), en í satem-málum byrjaði það oft á /s/ (orðið satem er úr avestísku, sem var notuð í sóróískum helgiritum).
Í töflunni hér að neðan má sjá endurgerðu tungubakshljóð frumindóevrópsku, í þremur seríum (samkvæmt nýlegum kenningum hefðu mögulega verið aðeins tvær seríur, eða þrjár seríur með öðruvísi framburði en þeim sem er lýst hér fyrir neðan). Í kentum-málunum féllu framgómmælt gómhljóð (e. palatovelars) — þar á meðal samhljóðið í framstöðu orðsins yfir „hundrað“ — saman við „hreinu“ gómhljóðin, þar sem í satem-málunum hélst aðgreiningin, en varamæltu gómhljóðin (e. labiovelars) féllu saman við „hreinu“ gómhljóðin.
*kʷ, | *gʷ, | *gʷʰ | (varamælt gómhljóð) | samfellt í satem-málum | |
samfellt í centum-málum | *k, | *g, | *gʰ | (gómhljóð) | |
*ḱ, | *ǵ, | *ǵʰ | (framgómmælt gómhljóð) | blísturshljóðuð (e. assibilated) í satem-málum |
Kentum-satem-skiptingin myndar mállýskumörk í eintímalegum (synkrónískum) lýsingum á fornum indóevrópskum málum. Samt er ekki gert ráð fyrir að frumindóevrópska hafi klofnað í kentum-grein og satem-grein, og þaðan hafi komið öll kentum- og satem-mál. Slík þróun er ólíkleg miðað við að þrátt fyrir að satem-mál séu almennt austlæg og kentum-mál vestlæg er austlægasta grein indóevrópskra mála tokkaríska, kentum-mál.
Skiptingin
breytaKentum-mál
breytaViðurkenndu kentum-ættirnar eru yfirleitt „vestrænar“ greinar: hellenísk, keltnesk, ítalísk og germönsk mál. Anatólísk mál falla líklegast ekki undir kentum-satem-skiptinguna. Tokkaríska er yfirelitt talin kentum-mál.
Satem-mál
breytaSatem-mál eru yfirleitt „austræn“, þ.e. indóírönsk og baltóslavnesk mál. Albanska og armenska eru líka yfirleitt taldar satem-mál.
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Centum and satem languages“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 14. desember 2015.