Imperial College London
Imperial College London (opinberlega The Imperial College of Science, Technology and Medicine, óformlega Imperial) er almennur rannsóknarháskóli staddur í London og sérhæfður í viðskiptafræði, verkfræði, læknisfræði og vísindum. Hann var áður skóli innan Háskólans í London en árið 2007 (100 ára afmæli háskólans) varð hann sjálfstandandi háskóli. Háskólinn var stofnaður árið 1907 og honum var gefið Royal Charter sama ár.
Aðalháskólalóðin er í South Kensington í Mið-London á milli borgarhlutans Kensington og Chelsea og Westminsterborgar. Aðalinngangur háskólans er við Exhibition Road. Háskólinn á nokkrar aðrar lóðir í Chelsea, Hammersmith og Paddington. Talsins á háskólinn 525.233 fermetrar fasteigna, meiri en allir hinir háskólar á Bretlandi. Um það bil 13.500 nemendur eru skráðir í fullu námi í háskólanum og um 3.330 manns starfa þar í kennslu og rannsóknum. Tekjur háskólans var um 694 milljónir breskra punda árið 2008/09, úr þeim voru 290 milljónir frá rannsóknarstyrkjum.
Samkvæmt Akademiskrí röðun háskóla er Imperial 26. besti háskólinn í heimi. Meðal þeirra sem vinna í háskólanum og þeirra sem hafa útskrifast hafa 14 manns unnið Nóbelsverðlaunin og tveir Fields-orðuna.
Heimild
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Imperial College London“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 6. febrúar 2011.
Tenglar
breyta- Vefsíða Imperial College London Geymt 26 október 2008 í Wayback Machine