HSBC
HSBC Holdings plc er almenningshlutafélag gert að hlutafélagi í Englandi og Wales árið 1990. Höfuðstöðvar fyrirtækisins hefur verið í London síðan 1993. Frá og með 2009 er HSBC stærsti banki í heimi og sjötta stærsta fyrirtækið í heimi, samkvæmt tímaritinu Forbes. Höfuðstöðvar þeirra voru staðsettar í Hong Kong þar til ársins 1992 þegar HSBC tók yfir Midland Bank, yfirtakan gerði að verkum að nauðsynlegt var að flytja höfuðstöðvarnar til London. Hong Kong er enn mikilvæg tekjuöflunarleið fyrir bankann. Í seinni tíð hafa HSBC yfirtekið nokkra banka í Kína og þannig kemur bankinn aftur í uppruna sína. HSBC hefur stóran markað í Asíu í útláni, fjárfestingu og vátryggingu.
HSBC Holdings plc 滙豐控股有限公司 | |
Rekstrarform | Almenningshlutafélag |
---|---|
Slagorð | The world’s local bank |
Stofnað | 1895 í Hong Kong |
Staðsetning | London, Bretland |
Lykilpersónur | Stephen Green, formaður Michael Geoghegan, framkvæmdastjóri |
Starfsemi | Bankarekstur Fjármálaþjónusta Fjárfestingarþjónusta |
Tekjur | 137,309 milljarðar bandaríkjadala |
Dótturfyrirtæki | HSBC Bank plc The Hongkong and Shanghai Banking Corporation HSBC Bank USA HSBC Bank Middle East HSBC Mexico HSBC Bank Brazil HSBC Finance |
Starfsfólk | 331.458 um allan heim |
Vefsíða | www.hsbc.com |
HSBC er skrifað hjá kauphöllum í London, New York, Hong Kong, París og Bermúda og er líka skrifað í FTSE 100- og Hang Seng-vísitölunum.