Gúrkutíð
Gúrkutíð er orð sem er notað úm tímann þegar lítið er um að vera í fréttum. Orðið á rætur sínar að rekja til danska orðsins agurketid sem á sjálft uppruna í þýska orðinu Sauregurkenzeit. „Gúrkutíðin“ er sú tíð þegar gúrkur eru skornar upp og settar í pækil, sem er yfirleitt á seinnipart sumarsins, á sama tíma þegar lítið er að frétta.
Svipuð orð eru notuð á mörgum tungumálum, t.d. norska agurktid, hollenska komkommertijd, tékkneska okurková sezóna, slóvakíska uhorková sezóna, pólska sezon ogórkowy, ungverska uborkaszezon, eistneska hapukurgihooaeg og hebreska עונת המלפפונים.
Á enskumælandi löndum gengur gúrkutíð undir ýmsum nöfnum. Á Bretlandi og Írlandi er átt við gúrkutíðina sem silly season „kjánalega tíðin“. Orðið silly í þessu samhengi vísar til óvenjulegu fréttanna sem mikið er af undir lok sumarsins, þegar þingið er í fríi. Í Bandaríkjunum heitir gúrkutíð slow news season „tíð rólegra frétta“.
Heimild
breyta- Svar við „Hvers vegna er talað um gúrkutíð þegar lítið er um að vera í fréttum?“ á Vísindavefnum. Sótt 6. september 2014.