Fuglarnir (leikrit)
Fuglarnir (á forngrísku: Ὄρνιθες (Orniþes); á latínu: Aves) er gamanleikur eftir forngríska gamanleikjaskáldið Aristófanes. Það var fyrst sett á svið árið 414 f.Kr. á Díonýsosarhátíðinni í Aþenu.
Leikritið er, ólíkt flestum öðrum leikritum Aristófanesar, ekki ádeila á tiltekinn einstakling eða atburð. Það er talið sækja innblástur sinn til Sikileyjarsóknar Aþeninga í Pelópsskagastríðinu árið 415 f.Kr.
Varðveitt verk Aristófanesar
Akarníumenn | Riddararnir | Skýin | Vespurnar | Friðurinn | Fuglarnir | Lýsistrata | Konur á Þesmófóruhátíð | Froskarnir | Þingkonurnar | Auðurinn
|
---|