Buzz Aldrin
Bandarískur geimfari og annar maðurinn á tunglinu
(Endurbeint frá Edwin Aldrin)
Buzz Aldrin (fæddur 20. janúar 1930 sem Edwin Aldrin) er fyrrverandi bandarískur geimfari og orrustuflugmaður. Hann er frægastur fyrir að hafa verið annar maðurinn til að stíga fæti á tunglið á eftir Neil Armstrong. Það gerði hann í annarri og síðustu geimferð sinni, með Apollo 11 þann 20. júlí 1969. Hann varði, ásamt Armstrong tveimur og hálfri klukkustund á yfirborði tunglsins á meðan Michael Collins var á sporbraut fyrir ofan. Hann breytti nafni sínu formlega í Buzz árið 1988.
Edwin „Buzz“ Aldrin | |
Buzz Aldrin fyrir Apollo 11 ferðina. | |
Fæddur | 20. janúar 1930 Glen Ridge, New Jersey, Bandaríkjunum |
---|---|
Tími í geimnum | 12 dagar, 1 klukkustundir og 52 mínútur |
Verkefni | Gemini 12 og Apollo 11 |
Bósi Ljósár úr teiknimyndinni Leikfangasaga heitir eftir Buzz Aldrin.
Tenglar
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Buzz Aldrin.
- Ítarlegar upplýsingar um Apollo 11 á Stjörnufræðivefnum Geymt 13 febrúar 2010 í Wayback Machine