Chichewa
Chichewa (eða Cinyanja) er tungumál í Bantúmálafjölskyldunni og jafnframt opinbert tungumál í Malaví. Málið er einnig talað í Sambíu, Mósambík og Simbabve. Forskeytið chi- (einnig skrifað ci-) merkir tungumál og er því oft talað um Chewa eða Nyanja. Chingoni (Ngoni) og Chikunda (Kunda) eru mállýskur þess.
Chichewa Chicheŵa | ||
---|---|---|
Málsvæði | Malaví, Mósambík, Sambía og Simbabve | |
Heimshluti | Mið-Afríka | |
Fjöldi málhafa | 9,3 milljónir | |
Sæti | ekki meðal 100 efstu | |
Opinber staða | ||
Opinbert tungumál |
Malaví | |
Stýrt af | Ekki vitað | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | ny
| |
ISO 639-2 | nya
| |
SIL | nya
| |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Dreifing
breytaChichewa er opinbert tungumál í Malaví ásamt því að það er talað í nokkrum ættbálkum í austurhluta Sambíu. Í Mósambík er málið talað í Tété og Niassa-héröðunum og í Simbabve er tungan þriðja útbreiddust í landinu, á eftir Shona og Ndebele.
Saga
breytaMálið kemur frá veldi Marava, sem var uppi á 15. til 18. öld og náði yfir allt Malaví og hluta Mósambík og Sambíu. Eftir að veldið splundraðist hélt tungumálið velli og kristnir trúboðar tóku m.a. tunguna þegar þeir komu inn á svæðið. Fyrsta málfræðibókin á Chewa var skrifuð uppúr 1880 af Alexander nokkrum.
Tengill
breytaNígerkongótungumál | ||
---|---|---|
Abanjommál | Adelska | Akanmál | Anló | Atabaskamál | Chichewa | Svahílí |