Cayetano Saporiti
Cayetano Saporiti (14. janúar 1887 – 30. nóvember 1959) var sigursæll úrúgvæskur knattspyrnumaður á fyrsta og öðrum áratug tuttugustu aldar. Hann lék sem markvörður hjá Montevideo Wanderers og úrúgvæska landsliðinu.
Cayetano Saporiti | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fæðingardagur | 14. janúar 1887 | |
Fæðingarstaður | Montevídeó, Úrúgvæ | |
Dánardagur | 30. nóvember 1959 (72 ára) | |
Dánarstaður | Montevídeó, Úrúgvæ | |
Leikstaða | Markvörður | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
1903-20 | Montevideo Wanderers | 342 (?) |
Landsliðsferill | ||
1905-1919 | Úrúgvæ | 56 (0) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Ævi og ferill
breytaCayetano Saporiti hóf barnungur að æfa knattspyrnu með smáliðinu Treinta y Tres en gekk sextán ára gamall til liðs við Montevideo Wanderers sem var meðal stórliðanna á upphafsskeiði úrúgvæskrar knattspyrnu. Hann tryggði sér fljótlega aðalmarkvarðarstöðunni og hélt henni að mestu þar til hann lagði hanskana á hilluna árið 1920.
Með Wanderers-liðinu varð hann úrúgvæskur meistari í tvígang, árin 1906 og 1909. Hann vann einnig til ýmissa smærri titla með félagsliði sínu.
Saporiti var markvörður úrúgvæska landsliðsins á fimmtánda ár og lék á þeim tíma 56 landsleiki, sem lengi var met fyrir markvörð í landsliðinu. Hann var afar sigursæll í ýmsum alþjóðakeppnum, sem margar hverjar voru á milli Úrúgvæ og Argentínu. Úrúgvæ varð Suður-Ameríkumeistari í tveimur fyrstu keppnunum, 1916 og 1917 með Saporiti milli stanganna. Í síðarnefndu keppninni meiddist hann þó illa í úrslitaleiknum þegar 20 mínútur voru til leiksloka og þurfti varnarmaðurinn Manuel Varela að taka stöðu hans, þar sem varamenn höfðu ekki enn verið kynntir til sögunnar.
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Cayetano Saporiti“ á þýsku útgáfu Wikipedia. Sótt 21. desember 2023.