Bjarkey Gunnarsdóttir
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (f. 27. febrúar 1965) var þingmaður fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð frá 2013 til 2024. Hún var matvælaráðherra Íslands frá 9. apríl til 17. október 2024. Hún tók við embættinu af Svandísi Svavarsdóttur í annari ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar. Bjarkey var varaþingmaður fyrir flokkinn frá 2003 til 2013 og var fyrst kjörin á þing fyrir flokkinn í alþingiskosningunum 2013. Hún gaf ekki kost á sér í alþingiskosningum 2024.[1]
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG) | |||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Matvælaráðherra Íslands | |||||||||
Í embætti 9. apríl 2024 – 17. október 2024 | |||||||||
Forsætisráðherra | Bjarni Benediktsson | ||||||||
Forveri | Svandís Svavarsdóttir | ||||||||
Eftirmaður | Bjarni Benediktsson | ||||||||
Alþingismaður | |||||||||
| |||||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||||
Fædd | 27. febrúar 1965 Reykjavík | ||||||||
Stjórnmálaflokkur | Vinstrihreyfingin – grænt framboð | ||||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Tilvísanir
breyta- ↑ „Bjarkey stígur til hliðar“. DV. 20. október 2024.