Verkfall
Verkfall er skipulögð vinnustöðvun launafólks í fyrirtæki, starfsgrein(um) eða iðnaði til að ná fram til dæmis launahækkun eða bættum vinnuskilyrðum yfirleitt hjá starfsfólki sem fer í verkfall en stundum til að þrýsta á annarra vinnuveitendur, þá kallað "samúðarverkfall". Verkbann er samsvarandi vinnustöðvun að undirlagi atvinnurekenda. Verkföll urðu fyrst almennt notuð í réttindabaráttu launafólks í Iðnbyltingunni þegar þörf skapaðist fyrir mikið af vinnuafli í verksmiðjum.
Það þarf að skrifa þessa grein út frá alþjóðlegu sjónarmiði. Vinsamlegast bættu greinina eða ræddu málið á spjallsíðunni. |
Verkfall getur verið ótímabundið eða tímabundin aðgerð en þá jafnvel endurtekin, hugsanlega reglulega. Stundum neita starfsmenn að vinna yfirvinnu, sem er strangt til tekið ekki verkfall.
Dæmi um verkföll
breytaLangvinn verkföll á Íslandi hafa t.d. átt sér stað í vinnudeilum kennara. Verkfall grunnskólakennara 2004 og 1995 stóðu í meira en mánuð.
Á árinu 2015 fóru læknar, hjúkrunarfræðingar, starfsmenn SFR, lögreglan og Sjúkraliðafélag Íslands í verkfall.
Sjómenn fóru í verkfall á árinu 2001, og í 10 vikur frá miðjum desember 2016 fram í febrúar 2017.
BHM fór í verkfall 1984. Framhaldsskólakennarar fóru í verkfall 1995.