Toppönd
Toppönd (fræðiheiti: Mergus serrator) er önd sem er bæði staðfugl og farfugl á Íslandi. Toppendur eru önnur tveggja tegunda af ættkvíslinni Mergus hér á landi, en það þýðir að hún er fiskiönd; hin kallast gulönd. Fiskiendur eru kafendur sem éta nær eingöngu seiði og smáfisk. Hún er víðast hvar mjög styggur fugl. Toppendur eru algengar um allt land nema á hálendinu. Stofnstærðin er talin 2.000–4.000 varppör. Heimilt er að veiða toppendur og mun eitthvað gert af því.
Toppönd | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Steggur
| ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Mergus serrator Linnaeus, 1758 | ||||||||||||||
Dreifing toppandar
|
Einkenni
breytaLengd: 52 – 58 sm. | Þyngd: 900 – 1350 g. | Vænghaf: 67 – 82 sm.
Hálslöng og rennileg, grannvaxin, vaxtarlagið minnir á skarfa og brúsa. Hún er með langan mjóan gogg og áberandi stríðan tvítopp í hnakka. Rauðleitur goggurinn er langur og mjór með þyrnitönnum sem auðveldar fuglinum að ná taki á hálum fiski. Fætur eru rauðir með dekkri fitjum og augu eru rauð. Flýgur venjulega lágt og hratt. Tilhugalífið er oft afar fjörlegt og mikil læti. Lætur helst heyra í sér í tilhugalífinu með rámu gargi.
Fæða
breytaKafendur – fiskiendur, sem éta nær eingöngu seiði og smáfisk eins og nafnið gefur til kynna. Oftast eru hornsíli aðalfæða toppandarinnar.
Varp
breytaVarpsvæði eru lyngmóar eða kjarrlendi. Hreiðrin eru fóðruð með eigin dúni og eru falin vel og verpa því gjarnan í holur og glufur (t.d. í hrauni). Varptíminn er í júní og fram í ágúst. Eggin eru sjö til tólf talsins.
Veiðar
breytaLeyfðar eru veiðar á toppöndini frá 1. september til 15. mars ár hvert [1]. Meðalveiði sl. fimm ára hafa verið 625 fuglar á ári [2].
Dreifing
breytaFinnst við stöðuvötn, ár og stendur, aðallega á láglendi en er sjaldgæf á hálendinu. Hreiðrið er vel falið í gróðri eða holum og sprungum, fóðrað með sinu og dúni. Á veturna leitar hún út á sjó og steggir fella fjaðrirnar aðallega á sjó. Hluti stofnsins hefur vetursetu á Bretlandseyjum verpur á breiðu belti allt umhverfis Norðurheimskautið.
Tilvísanir
breyta