Thích Quảng Đức
Thích Quảng Đức (1897 – 11. júní 1963 í Saigon í Víetnam) (quốc ngữ: Thích Quảng Đức; Chữ Nôm: 釋廣德) var búddamunkur frá Huế í Víetnam sem framdi sjálfsmorð með sjálfsíkveikju á miðdegi 11. júní 1963 á fjölförnum gatnamótum í Saigon í Víetnam til að mótmæla kúguninni sem búddistar þurftu að þola undir stjórn forseta landsins, Ngô Đình Diệm, sem var kaþólskrar trúar. Forsetafrú hans, Ngô Đình Nhu, hafði það að segja um atburðinn að hún myndi klappa sæji hún aðra „munkagrillsýningu“, þessi ummæli urðu til þess að hún fékk viðurnefnið „drekakonan“.
Thích Quảng Đức | |
---|---|
Fæddur | Lâm Văn Túc 1897 |
Dáinn | 11. júní 1963 (65–66 ára) |
Þjóðerni | Víetnamskur |
Trú | Búddismi |
Ástæður fyrir sjálfsíkveikjunni
breytaThích Quảng Đức hafði undirbúið sig fyrir sjálfsíkveikjuna með hugleiðslu um nokkurra vikna skeið og útskýrt ástæðurnar fyrir henni í bréfum til búddistasamfélagsins og ríkisstjórnar Suður-Víetnam. Í þessum bréfum útskýrði hann löngun sína til að vekja athygli á kúgun búddasamfélagsins af hálfu ríkisstjórnar Ngô Đình Diệm. Í bréfi til ríkisstjórnarinnar hafði hann beðið hana að:
- Afnema bannið á búddistafánanum.
- Veita búddisma sömu réttarstöðu og kaþólskri trú.
- Hætta að hafa búddista í haldi.
- Veita búddamunkum og nunnum rétt til að iðka og boða trú sína.
- Veita fjölskyldum fórnarlambanna bætur og refsa þeim sem báru ábyrgð á dauða þeirra.
Ríkisstjórnin varð ekki við þessum beiðnum, sem varð til þess að Thích Quảng Đức framdi sjálfsíkveikju sína. Eftir dauða hans var hann endurbrenndur og sagt er að hjarta hans hafi ekki viljað brenna, fyrir vikið er það talið heilagt.
-
Minnismerki Thích Quảng Đức, þar sem hann brann.
-
Önnur mynd af sjálfsíkveikju Thích Quảng Đức.
Áhrif í menningu
breytaÁrið 1992 notaði rokkhljómsveitin Rage Against The Machine myndina á umslagi samnefndrar frumraunar þeirra.
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Thích Quảng Đức“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 26. október 2005.
- „Self-Immolation of Thich Quang Duc“. Sótt 26. október 2005.
Tenglar
breyta- Búddaklaustur tileinkað Thích Quảng Đức Geymt 5 ágúst 2009 í Wayback Machine
- Myndir af Thích Quảng Đức Geymt 18 október 2007 í Wayback Machine