Svartbjörk
Svartbjörk (fræðiheiti: Betula nigra) er birkitegund af ættkvíslinni Betula, ættuð frá austurhluta Bandaríkjanna. Tegundin finnst allt frá New Hampshire vestur til Suður-Minnesota, suður til norðurhluta Flórída og vestur til Texas. Þetta er ein af fáum hitakærum tegundum ættkvíslarinnar. B. nigra vex oft á flæðum og mýrum.[1]
River birch | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
The bark of a young river birch
| ||||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Betula nigra L. | ||||||||||||||||
Útbreiðslusvæði Betula nigra
|
Lýsing
breytaSvartbjörk er sumargrænt lauftré sem verður um 25-30 metra hátt, stofninn 50 til 150 sm í þvermál, oft margstofna. Börkurinn er breytilegur, yfirleitt dökk-grábrúnn eða bleik-brúnn og hreistraður, en stöku tré geta verið slétt og beikhvít með næfrum. Árssprotarnir eru hárlausir eða gisinhærðir. Blöðin eru stakstæð, egglaga, 4-8 sm löng og 3-6 sm breið, með tenntum jaðri og fimm til tólf pör af æðum. Reklarnir eru 3-6 sm langir, karlreklarnir hangandi, kvenreklarnir uppréttir. Fræin eru óvenjuleg af birki að vera, því þau þroskast að vori.[1][2]
Ræktun og nytjar
breytaÞó að náttúrulegt búsvæði tegundarinnar sé votlendi, vex hún líka ofan votlendis. Börkurinn er einkennandi fyrir svartbjörk og gerir hana að vinsælu skrauttré. Nokkur ræktunarafbrigði með hvítari börk hafa verið valin til framræktunar, þar á meðal yrkin 'Heritage' og 'Dura Heat'; þetta eru einu hvítstofna birkitrén sem hafa mótstöðu gegn barkarbjöllunni Agrilus anxius á hlýrri svæðum í Suðaustur-Bandaríkjunum.[3]
Indíánar gerðu birkisíróp úr safa svartbjarkar, áþekkt hlynsýrópi, og nýttu vaxtarvefinn milli barkar og viðarvefs til matar í hallæri eða sem neyðarbrauð. Stofninn er yfirleitt of kræklóttur og kvistóttur til að geta gefið verðmætt timbur.[3]
Myndir
breyta-
Nýmynduð blöð á nær fullþroska svartbjörk -
Svartbjörk við Skyfields Arboretum
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 Flora of North America Editorial Committee (ritstjóri). „Betula nigra“. Flora of North America North of Mexico (FNA). New York and Oxford: Oxford University Press – gegnum eFloras.org, Missouri Botanical Garden, St. Louis, MO & Harvard University Herbaria, Cambridge, MA.
- ↑ Grelen, H. E. (1990). „Betula nigra“. Í Burns, Russell M.; Honkala, Barbara H. (ritstjórar). Hardwoods. Silvics of North America. Washington, D.C.: United States Forest Service (USFS), United States Department of Agriculture (USDA). 2. árgangur – gegnum Southern Research Station.
- ↑ 3,0 3,1 Harlow, W. M., & Harrar, E. S. (1969). Textbook Of Dendrology 5th ed., LOC# 68-17188
Ytri tenglar
breyta- Bioimages.vanderbilt.edu: Betula nigra images Geymt 6 júlí 2008 í Wayback Machine
- Betula nigra — Diagnostic photos and information, Morton Arboretum accession 232-51-3.