Susan Sontag
bandarískur rithöfundur, kvikmyndagerðarmaður, heimspekingur og aðgerðasinni (1933-2004)
Susan Sontag (16. janúar 1933 – 28. desember 2004) var bandarískur rithöfundur, kvikmyndagerðarmaður, heimspekingur, kennari og pólitískur aðgerðasinni.[1] Hún skrifaði að mestu ritgerðir, verk um fagurfræði, bókmenntir, kvikmyndir, ljósmyndir og pólitík en gaf líka út skáldsögur og skrifaði handrit að kvikmyndum.
Susan Sontag | |
---|---|
Fædd | Susan Rosenblatt 16. janúar 1933 New York City, U.S. |
Dáin | 28. desember 2004 New York City, New York, U.S. | (71 ára)
Störf | Rithöfundur, skáld, kvikmyndagerð |
Maki | Annie Leibovitz (1989-2004) |
Sontag skrifaði mikið um átakasvæði og ferðaðist gjarnan til slíkra svæða, til að mynda fór hún til Víetnam og var viðstödd umsátrið um Sarajevó. Hún skrifaði mikið um ljósmyndun, menningu og fjölmiðla, AIDS og veikindi, mannréttindi, kommúnisma og vinstri hugmyndafræði. Þótt ritgerðir hennar og ræður hafi gjarnan valdið deilum hefur henni verið lýst sem „einni af áhrifamestu gagnrýnendum sinnar kynslóðar.“[2]
Útgefin verk
breytaSkáldverk
breyta- (1963) Velgjörðarmaðurinn (e. The Benefactor)
(1967) Death Kit - (1977) I, etcetera (smásögusafn)
- (1991) Hvernig við lifum nú (smásaga)
- (1992) The Volcano Lover
- (1999) Í Ameríku
Leikrit
breyta- (1990) Hvernig Við Lifum Nú
- (1991) A Parsifal
- (1993) Alice í Rúminu
- (1998) Konan úr hafinu
Ritgerðasöfn
breyta- (1966) Gegn Túlkun
- (1969) Stíll róttæks vilja
- (1980) Undir Merki Satúrnusar
- (2001) Where the Stress Falls
- (2003) Um sársauka annarra
- (2007) Á sama tíma: ritgerðir & ræður
Rit
breyta- (1977) Um ljósmyndun
- (1978) Veikindi sem samlíking
- (1988) AIDS og myndlíkingar þess
- (2003) Um sársauka annarra
Heimildir
breyta- ↑ Sontag, Susan (1967). „What's Happening to America? (A Symposium)“. Partisan Review. 34 (1): 57–8. Afrit af upprunalegu geymt þann 27. mars 2014.
- ↑ "Susan Sontag", The New York Review of Books, accessed December 19, 2012