Annie Leibovitz
Anna-Lou Leibovitz (f. 2. október 1949) er bandarískur ljósmyndari sem er þekktust fyrir portrettmyndir af þekktu fólki, oft í persónulegum aðstæðum og sérkennilegum stellingum. Ein af frægustu ljósmyndum hennar er mynd af fullklæddri Yoko Ono og nöktum John Lennon í faðmlögum tekin aðeins fimm tímum áður en hann var myrtur utan við heimili þeirra í New York. Sú mynd er ein frægasta forsíðumynd tímaritsins Rolling Stone, en Leibovitz vann sem ljósmyndari fyrir tímaritið frá 1970 til 1980. Árið 1983 hóf hún störf hjá Vanity Fair og 1998 fór hún að starfa meira fyrir Vogue. Myndir hennar hafa oft vakið umtal og hneykslun, meðal annars fyrir nektaruppstillingar. Hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín og var fyrsta konan sem hélt sérsýningu í National Portrait Gallery í Washington.[1]
Leibovitz átti í nánu sambandi við rithöfundinn Susan Sontag frá 1989 þar til Sontag lést árið 2004, en þær bjuggu aldrei saman.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ Somerstein, Rachel (27. október 2008). „Annie Leibovitz: Life Through a Lens“. PBS.org. Sótt 18. maí 2017.
- ↑ Cathleen McGuigan (2. október 2006). „Through Her Lens“. Newsweek. Afrit af upprunalegu geymt þann 29. ágúst 2007. Sótt 19. júlí 2007.