Strandlaukur
Allium vineale er fjölær lauktegund, ættuð frá Evrópu, norðvestur Afríku og Miðausturlöndum.[1] Tegundin hefur verið flutt til Ástralíu og Norður Ameríku, þar sem hún er orðin ágengt illgresi.[2][3][4][5][6]
Strandlaukur | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Blómskipan með æxlilaukum og fáeinum blómum
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Allium vineale L. | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Listi
|
Lýsing
breytaAllir hlutar jurtasrinnar eru með sterkri hvítlaukslykt. Laukurinn er 1 til 2 sm í þvermál, með trefjakenndu ytra byrði. Meginstöngullinn verður 30 til 120 sm hár, með 2 til 4 blöðum og endastæðri blómskipan með fjölda æxlilauka og engum eða fáum blómum. Blöðin eru mjó, rörlaga, 15–60 sm löng og 2–4 mm þykk, með vaxkenndri áferð. Blómskipanin er hulin himnu sem visnar þegar blómin opnast. Hvert blóm er á stilk og er með grænbleikan "perianth" 2.5 til 4.5 mm langan. Þau eru með sex krónublöð, sex fræfla og eina frævu sem er mynduð af þremur samvöxnum egglegum. Saman við blómin eru nokkrir gulbrúnir æxlilaukar. Fræið er í hylki, en spíra sjaldan og fjölgun er aðallega með æxlilaukunum.[7][8] Plöntur með engumblómum, eingöngu æxlilaukum eru stundum skráðar sem afbrigðið: Allium vineale var. compactum.
Nytjar og vandamál
breytaÞó að það hafi verið mælt með Allium vineale sem staðgengli fyrir hvítlauk, þá eru skiftar skoðanir um það hvort að það sé óþægilegt eftirbragð af honum miðað við venjulegan hvítlauk. Hann veldur hvítlauksbragði og lykt af mjólk og kjöti af skepnum sem hafa verið á beit í þar sem hann er. Hann er einnig talinn vandamál í kornrækt, þar sem lykt og bragð smitast af æxlilaukunum við uppskeru.[9][10][11] Hann er þolinn gegn jurtaeitri, sem nær ekki góðri festu á beinum, sléttum og vaxkenndum stöngli og blöðum.[12][13]
Sjá einnig
breytaTilvísanir
breyta- ↑ „Kew World Checklist of Selected Plant Families“. Afrit af upprunalegu geymt þann 7. október 2012. Sótt 22. apríl 2018.
- ↑ "Allium vineale". Flora of North America (FNA). Missouri Botanical Garden – via eFloras.org.
- ↑ "Allium vineale". County-level distribution map from the North American Plant Atlas (NAPA). Biota of North America Program (BONAP). 2013.
- ↑ „"Allium vineale". Germplasm Resources Information Network (GRIN). Agricultural Research Service (ARS), United States Department of Agriculture (USDA)“. Afrit af upprunalegu geymt þann 31. maí 2017. Sótt 22. apríl 2018.
- ↑ Weeds Australia, Australian Weeds Committee, Allium vineale Geymt 15 mars 2014 í Wayback Machine
- ↑ Brewster, J. L. (2008). Onions and Other Alliums. (Wallingford: CABI Publishing. ISBN 978-1-84593-399-9.
- ↑ „Wild garlic: Allium vineale“. NatureGate. Sótt 31. desember 2013.
- ↑ Davies, D. (1992). Alliums: The Ornamental Onions. (Portland: Timber Press. ISBN 0-88192-241-2.
- ↑ Eric Block, "Garlic and Other Alliums: The Lore and the Science" (Cambridge: Royal Society of Chemistry, 2010)
- ↑ James L. Brewster, "Onions and Other Alliums" (Wallingford: CABI Publishing, 2008)
- ↑ Dilys Davies, "Alliums: The Ornamental Onions" (Portland: Timber Press, 1992)
- ↑ Wild Garlic & Wild Onion. Clemson University. Retrieved May 12, 2013
- ↑ Block, E. (2010). Garlic and Other Alliums: The Lore and the Science. (Cambridge: Royal Society of Chemistry. ISBN 978-0-85404-190-9.
Ytri tenglar
breyta- Richens, R.H. 1947. Biological flora of the British Isles: Allium vineale L. Journal of Ecology 34, 209-226.
- Jepson Manual Treatment
- USDA Plants Profile Geymt 27 maí 2013 í Wayback Machine
- Virginia Tech Weed Guide Geymt 21 ágúst 2008 í Wayback Machine
- Allium vineale in the CalPhotos Photo Database, University of California, Berkeley