Stevie Ray Vaughan
Stevie Ray Vaughan (fæddur 3. október 1954, látinn 27. ágúst 1990) var bandarískur gítarleikari, söngvari og lagahöfundur. Gefnar hafa verið út 18 plötur með honum fram til þessa. Árið 2003 valdi Rolling Stone-tímaritið hann sem sjöunda mesta gítarleikara allra tíma[1] og árið 2007 valdi tímaritið Classic Rock hann sem þriðju viltustu gítarhetjuna. Stærsta hluta ferilsins lék hann með hljómsveitinni Double Trouble, en með þeim öðlaðist hann frægð fyrir rafmagnaðan blúsgítarleik sinn.
Stevie Ray Vaughan | |
---|---|
Fæddur | Stephen Ray Vaughan 3. október 1954 |
Dáinn | 27. ágúst 1990 |
Önnur nöfn | SRV |
Uppruni | Dallas, Texas, Bandaríkin |
Ár virkur | 1970–1990 |
Stefnur | Blús Blús-rokk |
Hljóðfæri | gítar og söngur |
Samvinna | Double Trouble Jimmie Vaughan David Bowie |
Tilvísanir
breyta- ↑ „100 Greatest Guitarists of All Time“. Sótt 18. ágúst 2009.